Innlent

Störf Alþingis mögulega framlengd vegna persónuverndar frumvarps

Heimir Már Pétursson skrifar
Stjórnarandstaðan segir stjórnarliða ætla málinu allt of stuttan tíma en mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær, viku áður en hlé verður gert á þingstörfum fram á haust.
Stjórnarandstaðan segir stjórnarliða ætla málinu allt of stuttan tíma en mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær, viku áður en hlé verður gert á þingstörfum fram á haust. Vísir/Vilhelm
Störf Alþingis verða mögulega framlengd til að þingið nái að afgreiða frumvarp um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga sem og þingsályktun sem tengist frumvarpinu. Stjórnarandstaðan segir stjórnarliða ætla málinu allt of stuttan tíma en mælt var fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær, viku áður en hlé verður gert á þingstörfum fram á haust.

Í byrjun júlí er fyrirhugað að nefnd EES-ríkjanna taki persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins upp í lög Íslands, Noregs og Liechtenstein. Löggjöfin er viðamikil og nær til söfnunar og vörslu allra aðila í samfélaginu á persónuupplýsingum. Þá eru ákvæði í frumvarpinu um háar sektir fari fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök ekki að reglunum og kom fram á Alþingi í gær að þær sektir geti numið allt að 2,4 milljörðum króna.

Sigríður Andersen dómsmálaráðherra mælti fyrir frumvarpi upp á 24 síður og 147 síður með greinargerð í gær. Þá stóð til að hún mælti einnig sem starfandi utanríkisráðherra fyrir þingsályktun sem tengist upptöku laganna. Þar sem málið kom mjög seint til þings þurfti að veita afbrigði fyrir því að taka málið á dagskrá og spunnust langar umræður um afbrigðin á Alþingi í gær.

Þar gagnrýndi stjórnarandstaðan stjórnarliða harðlega fyrir að svo viðamikið mál kæmi til þings aðeins viku fyrir sumarhlé á þingstörfum og kom í veg fyrir að tillaga forseta Alþingis um að frumvarpið og þingsályktunin yrðu rædd samhljóða. En þingsályktunin er grundvöllur þess að hægt sé að afgreiða frumvarpið.

Stjórnarandstæðingar og þá sérstaklega þingmenn Pírata hafa kallað eftir frumvarpinu svo mánuðum skiptir. En gagnrýni stjórnarandstöðunnar felst meðal annars í því að ekki verði hægt að kalla hagsmunaaðila til fundar við þingnefnd og fá frá þeim álit en samkvæmt starfsáætlun Alþingis fer það í sumarhlé eftir næst komandi fimmtudag.

Þingflokksformenn funduðu með forseta Alþingis nú fyrir hádegi og funda nú með formönnum flokka. Ekki er útilokað að þing verði framlengt svo hægt verði að afgreiða þessi mál en frestun gæti kallað á óþægindi í samskiptum Íslands og ríkja Evrópusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×