Ólafur Arnalds gefur út lag um erfiðan tíma: „Hélt um tíma að ég gæti ekki spilað á píanó aftur“ Stefán Árni Pálsson skrifar 8. júní 2018 14:45 Lagið ber nafnið Unfold.
Í dag sendir tónlistarmaðurinn Ólafur Arnalds frá sér lagið Unfold og myndband við lagið í leiðinni. Plata er væntanleg frá Ólafi og kemur hún út í lok ágúst. Þetta er fyrsta plata hans í fullri lengd í rúm fimm ár og ber hún nafnið re:member en titillagið kom út fyrir rúmum mánuði. „Ég var búinn að vera með fingurna í mörgum mismunandi verkefnum undanfarin ár, s.s. að semja kvikmyndatónlist og spila með hljómsveitinni minni Kiasmos, en var búinn að einsetja mér að senda ekki frá mér efni undir eigin nafni fyrr en ég væri kominn með eitthvað algjörlega nýja nálgun á tónlistina mína,“ segir Ólafur.Ólafur hefur mikið verið að gera tónlist fyrir sjónvarpsþætti að undanförnu.Nordicphotos/GettyInnblásturinn fyrir nýja plötuna kom þó frá heldur óheppilegum aðstæðum. Fyrir nokkrum árum síðan lenti Ólafur í bílslysi og fékk taugaskemmdir í aðra höndina. „Ég hélt um tíma að ég gæti ekki spilað á píanó aftur, sem var algjörlega hryllilega tilhugsun. Þetta bjargaðist allt sem betur fer og þó ég hafi ekki fulla virkni get ég vel spilað,“ segir Ólafur. En það var vegna þessa slyss sem að hann fór að prófa sig áfram með sjálfspilandi píanó sem urðu á endanum miðpunkturinn í nýju plötunni. Hér að neðan má sjá myndbandið við nýja lagið.
Mest lesið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Sjá meira