Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 31. ágúst 2026 17:00 Sjöfn Þórðardóttir og eiginmaður hennar Lárus B. Lárusson bökuðu þúsund bollakökur með aðstoð Sigrúnar Sólar Vigfúsdóttur bakarameistari og konditori fyrir hlaupara í maraþoninu. Aðsend „Markmiðið er að hvetja fólk til að taka þátt í hlaupinu með því að hvetja hlauparana í dáða og láta vita að hvatning skiptir ekki síður máli en að hlaupa,“ segir Sjöfn Þórðardóttir sem með dyggri aðstoð bakaði þúsund bollakökur til að gleðja hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu.
Sjöfn og eiginmaður hennar Lárus B. Lárusson eru búsett á Seltjarnarnesi og hafa löngum tekið virkan þátt í því að hvetja hlaupara í maraþoninu. „Við hjónin vorum frumkvöðlar í því að standa fyrir alvöru klappliði og morgunverðarhlaðborði fyrir hlauparana í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka á Lindarbrautinni á Seltjarnarnesi fyrir þó nokkuð mörgum árum. Við fengum íbúana á Lindarbrautinni til að taka þátt með því að safnast út fyrir framan heimili sín, flagga og skreyta og hvetja hlauparana til dáða. Þetta er orðið að hefð og margir taka þátt enn í dag.“ View this post on Instagram A post shared by sjofnth (@sjofnth) Í ár fékk Íslandsbanki leyfi til að segja sögu hjónanna. „Markmiðið var og er að hvetja fólk til að taka þátt í hlaupinu með því að hvetja hlauparana í dáða og láta vita að hvatning skiptir ekki síður máli eins og að hlaupa. Í tilefni aukins sýnileika ákváðum við hjónin að gera enn betur og bjóða upp á enn fleiri bollakökur og fara yfir markið, baka þúsund bollakökur með Bakarameistaranum og gleðja hlauparana. Það sló heldur betur í gegn,“ segir Sjöfn brosandi og bætir við: „Við erum svo þakklát fyrir alla hjálpina, fyrir Sigrúnu Sól hjá Bakarameistaranum, Ölgerðina, Partýbúðina og Garðaþjónustuna fyrir að aðstoða okkur við að ná þessu markmiði og Evu Björk, ljósmyndara og Elínu Helgu fyrir að fanga gleðina sem var við völd á mynd.“ en hér má sjá vel valdar myndir frá fjörinu: Valda Anastasia Kolesnikova, Axel Sczepan, Raita Ostrovska, Lárus B. Lárusson, Sjöfn, Elín Helga Lárusdóttir og Heiðrún Hauksdóttir stóðu vaktina við þetta stórglæsilega veisluborð. Eva Björk Ægisdóttir Þessar kraftmiklu hlaupaskvísur skáluðu á miðri leið!Aðsend Þessi stilltu sér upp í hópmynd. Aðsend Hlauparar brostu breitt.Aðsend Stutt og gott stopp fyrir skál og myndatöku.Aðsend Duglegir hlauparar á Seltjarnarnesi.Aðsend Sjöfn Þórðardóttir með hattinn fyrir miðju bar bollakökur í hlaupara og dóttir hennar Elín Helga aðstoðaði, hér til hægri á mynd.Aðsend Raita Ostrovska dreifði gleði og bollakökum.Aðsend Axel Sczepan var í góðum fíling.Aðsend Þessar hlupu í einstökum búningum og tóku kærkomið stopp á Lindarbrautinni.Aðsend Stuðningsmenn í stuði.Aðsend Krúttlegar bollakökur.Aðsend Gleðin leyndi sér ekki og Sigrún Þóra og Ellen Gunnarsdætur dreifðu búbblum. Aðsend Mæðgurnar Sjöfn og Elín Helga skemmtu sér vel við að hvetja.Aðsend Hlaup og bollakökur er skemmtileg blanda.Aðsend Lárus býður hlaupara bollaköku.Aðsend Þessi bleika dama stoppaði í litríka bollaköku.Aðsend Það var líf og fjör við veisluborð Sjafnar og félaga. Aðsend Fjöldi hlaupara staldraði við í litla köku.Aðsend Valda Anastasia Kolesnikova og Rita voru duglegar að dreifa bollakökunum.Aðsend Þessi voru í miklu fjöri.Aðsend Gleði á Lindarbraut.Aðsend Það er alltaf einstök stemning sem myndast í Reykjavíkurmaraþoninu og hafa Sjöfn og Lárus hvatt hlauparana í áraraðir.Aðsend Þessar voru glaðar á hlaupum!Aðsend Ungur bollaköku-aðdáandi.Aðsend Frumlegar og flottar hlaupadrottningar með freyðivín og bollakökur. Aðsend Þúsund bollakökur ruku út.Aðsend Bros, hlaup, freyðivín og bollakökur.Aðsend
Reykjavíkurmaraþon Matur Mest lesið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Lífið samstarf Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Lífið Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Lífið Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Tíska og hönnun Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Sjá meira