Haustlegt veður um helgina Stefán Ó. Jónsson skrifar 8. júní 2018 06:42 Það gæti rignt og blásið örlítið á landsmenn um helgina. VÍSIR/GVA
Þó að áfram verði hlýtt á Norðausturlandi mega aðrir landshlutar búast við rigningu og að vindur aukist um helgina ef marka má spákort Veðurstofunnar. Þau gera þannig ráð fyrir fremur hægri suðlægri átt í dag, að það verði skýjað og sums staðar lítilsháttar súld suðvestan- og vestanvert en bjart að mestu á Norðurlandi. Þá verði jafnframt víða þokuloft austantil á landinu en að það birti til þegar líður á morguninn. Þó kunn áfram að vera þokubakkar við sjóinn. Hitinn verði 8 til 20 stig að deginum og hlýjast í innsveitum norðaustanlands. Spákortin gera svo ráð fyrir heldur ákveðnari vindi í nótt og á morgun sem fyrr segir. Honum mun fylgja rigning með köflum um landið vestanvert og þá mun jafnframt þykkna upp um landið austanvert. Hins vegar verður áfram hlýtt í veðri norðan- og austanlands, en svalara í öðrum landshlutum. Dálítil lægð fer svo norðaustur yfir land á sunnudag og mánudag og má þá búast við vætu í flestum landshlutum. Hlýja loftið sem hefur verið yfir landinu þokast austur á bóginn og kólnar heldur í veðri. Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag: Sunnan 5-10 og rigning eða súld um landið vestanvert, en þurrt að mestu suðaustantil og hiti 8 til 14 stig. Skýjað með köflum um landið norðaustanvert og hiti að 20 stigum. Á sunnudag:Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og dálítil væta sunnan- og vestantil, en skýjað og víða síðdegisskúrir um landið norðaustanvert. Kólnar lítið eitt.Á mánudag og þriðjudag:Breytileg átt 3-8. Skýjað og skúrir á stöku stað og hiti 6 til 13 stig, en yfirleitt þurrt sunnantil og heldur hlýrra.Á miðvikudag:Austlæg átt, skýjað að mestu og stöku skúrir. Hiti 8 til 15 stig að deginum, hlýjast suðvestanlands.Á fimmtudag:Útlit fyrir norðaustlæga átt. Dálítil væta austantil á landinu, en skýjað með köflum og úrkomulítið vestantil. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira