Næsta kynslóð þessara bíla verður framleidd í nýrri verksmiðju Volvo í Bandaríkjunum og í verksmiðju Volvo í Torslanda í Svíþjóð. Volvo XC40 jepplingurinn var kjörinn bíll ársins í Evrópu fyrir skömmu svo þar er ef til vill ekki nema von að mikil eftirspurn er eftir honum.
Styttist í nýjan V40 langbak
Volvo segir að von sé á fleiri minni bílum frá fyrirtækinu og búist við því að brátt muni Volvo kynna nýja gerð V40 langbaks sem bætist þá í fjölbreytt úrval slíkra bíla með V60 og V90 stærri bræðrunum.Enn fremur er S60 bíll á leiðinni frá Volvo og með því verða allar bílgerðir Volvo endurnýjaðar, en nýjum bílum Volvo hefur verið tekið með kostum að undanförnu og seljast þeir allir vel. Það eru því bjartir tímar hjá sænska framleiðandanum sem er í eigu hins kínverska bílaframleiðanda Geely. Svo fer einnig að styttast í hinn öfluga lúxusbíl Polestar 1, en Volvo stofnaði lúxusbíladeild undir merkjum Polestar. Polestar 1 verður 600 hestafla tengiltvinnbíll sem margir bíða eftir með mikilli eftirvæntingu.