Stjörnumenn þrefölduðu stigafjöldann í fyrsta leiknum í júní Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2018 17:30 Stjörnumenn fagna sigri á Blikum. Vísir/Bára
Júnímánuður hefur verið mikill vandræðamánuður fyrir Stjörnumenn eftir að þeir tryggðu sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil sumarið 2014 en nú lítur út fyrir að breyting verði á því. Stjarnan byrjaði júnímánuð 2018 mjög vel eða með 1-0 útisigri á toppliði Breiðabliks á Kópavogisvellinum í gærkvöldi. Stjörnuliðið er þar með búið að þrefalda stigafjölda júnímánaðar í fyrra þegar Garðabæjarliðið fékk aðeins eitt stig í fjórum leikjum. Stjarnan var á toppnum þegar júnímánuður rann í garð í fyrra (13 stig í 5 leikjum) en tapaði síðan þremur fyrstu leikjunum sínum í júní og missti í kjölfarið af lestinni í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn. Sigurinn í gærkvöldi sá hinsvegar til þess að Garðbæjarliðið er komið aftur inn í toppbaráttunni eftir rólega byrjun. Stjörnumenn eru líka komnir með jafnmörg stig í júní í ár og þeir fengu allan júnímánuð sumar 2016. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn síðan 2014 sem Stjarnan fær stig í fyrsta leik júnímánaðar og fyrsta sinn síðan 2013 sem Garðabæjarliðið fagnar sigri í fyrsta leik sínum í júní.Stjarnan í júnímánuði síðustu sumur: 2014 - 11 stig af 15 mögulegum 2015 - 6 stig af 12 mögulegum 2016 - 3 stig af 9 mögulegum 2017 - 1 stig af 12 mögulegum 2018 - 3 stig af 3 mögulegum
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira