Báru kennsl á lík eftir 64 ár Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. júlí 2018 20:26 Henri Le Masne fannst hátt upp í fjöllum. Vísir/Getty
Borin hafa verið kennsl á skíðakappa sem hvarf á Ítalíu fyrir rúmlega 60 árum síðan. Að sögn þarlendra miðla leystist málið eftir að sögur af manninum fóru á flug á samfélagsmiðlum. Málið má rekja til líkfundar í Aosta-héraðinu á Ítalíu árið 2005. Lík fannst hátt upp í fjöllunum og við hlið þess voru skíðabúnaður og gleraugu. Rannsakendum var fyrirmunað að bera kennsl á líkið og leituðu því á náðir samfélagsmiðla í júní síðastliðnum. Þeir settu færslu á Facebook þar sem þeir greindu frá öllu því sem þeir höfðu komist að við rannsókn sína. Þeir töldu nokkuð ljóst að um væri að ræða mann í kringum þrítugt, hann hafi verið um 175 sentímetrar á hæð og nokkuð efnaður. Fjallað var um færsluna í fjölmörgum evrópskum fjölmiðlum, til að mynda í Frakklandi, þar sem kona að nafni Emma Nassem kveikti á perunni. Hún velti fyrir sér hvort að um gæti verið að ræða frænda hennar sem ekkert hafði spurst til síðan að hann fór í skíðaferð nærri Matterhorn árið 1954. Talið var að fændi hennar, Henri Le Masne, hefði farist í fárviðri sem skall á skömmu eftir að hann hélt upp í brekkurnar. Hún setti sig í samband við rannsakendahópinn - rétt eins og bróðir skíðakappans, hinn 94 ára gamli Roger Le Masne, sem sendi tölvupóst þar sem hann lýsti bróður sínum. „Ég er bróðir Henri Le Masne... sem er líklega skíðakappinn sem hvarf fyrir 64 árum. Hann var piparsveinn og frekar sjálfstæður. Hann starfaði í fjármálaráðuneytinu í París,“ skrifaði bróðirinn. Haft er eftir ítölsku lögreglunni á vef breska ríkisútvarpsins að fjölskylda mannsins hafi sent embættinu mynd af Henri Le Masne, myndina sem sjá má hér að ofan. Á myndinni er maðurinn með gleraugun sem fundust við hlið líksins. Lífsýnarannsókn staðfesti að lokum grun fjölskyldunnar.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira