Taldi stórleikara vera innbrotsþjóf Stefán Ó. Jónsson skrifar 28. júlí 2018 20:37 Ving Rhames hefur leikið í fjölda stórmynda. Vísir/Getty
Leikarinn Ving Rhames segir að lögreglumenn hafi miðað að honum byssu á heimili hans, eftir að nágranni hafði tilkynnt um „stóran svartan mann“ sem brotist hafi inn. „Ég opna hurðina og þá er rauður ljóspunktur í andlitinu á mér,“ sagði leikarinn, sem er hvað þekktastur yfir leik sinni í myndum á borð við Mission: Impossible og Pulp Fiction, í samtali við þarlenda miðla í gær. Lögreglumaðurinn hafi miðað 9 millímetra skammbyssu að honum og farið fram á að hann myndi setja hendur upp í loft. Atvikið á að hafa gerst fyrr á þessu ári. Rhames sagði að þó augnablikið hafi verið taugatrekkjandi hafi ástandið fljótt róast eftir að lögreglustjórinn bar kennsl á leikarann. „Hann sagði að um mistök hefðu verið að ræða og baðst afsökunar,“ sagði Rhames og bætti við að málið tæki enn á hann. „Helstu áhyggjur mínar eru, sem ég tjáði þeim [lögreglumönnunum], að hvað hefði gerst ef þetta hefði verið strákurinn minn og hann hefði haldið á stýripinna sem þeir hefðu haldið að væri byssa?“ spurði leikarinn. Lögreglan hafi tjáð Rhames að nágranni hans hafi gert embættinu viðvart vegna manns sem væri að brjótast inn í hús leikarans. Þegar Rhames og lögreglumennirnir hafi hins vegar spurt nágrannann út í málið hafi hann neitað öllu. Rhames segir það agalegt að hann, svartur maður á besta aldri, get ekki verið heima hjá sér, „í körfuboltastuttbuxum,“ án þess að eiga á hættu á að lögreglan oti byssu framan í hann. Lögreglan í Santa Monica, sem brást við tilkynningunni, hefur ekki tjáð sig um málið við fjölmiðla vestanhafs.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent Fleiri fréttir Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Sjá meira