Háttsettur munkur ásakaður um að brjóta á nunnum Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. ágúst 2018 06:45 Xuecheng er meðal annars ráðgjafi kínverskra stjórnmála. Vísir/Getty
Háttsettur kínverskur ábóti þvertekur fyrir að hafa áreitt nunnur kynferðislega þar í landi. Hann neitar að sama skapi fyrir ásakanir þess efnis að hann hafi fengið þær til að sænga hjá sér með því að „stjórna hugsunum“ þeirra. Kínversk stjórnvöld hafa fengið í hendurnar skýrslu þar sem hin meintu brot Xuecheng eru rakin. Skýrsluna rituðu tveir munkar sem búið hafa í sama klaustri og ábótinn en aðrir forstöðumenn þess hafa sakað munkana um að hagræða sannleikanum. Í skýrslunni kemur fram að Xuecheng hafi sent fjölda nunna klúr og ógnandi skilaboð þar sem hann krafðist þess að þær sænguðu hjá honum. Hið minnsta sex nunnur hafi fengið slík skilaboð og fjórar þeirra eru taldar hafa gefið undan. Ábótinn er sagður hafa notað skilaboðin til að heilaþvo konurnar - kynlífið væri í raun hluti af trúarlegu uppeldi þeirra. Munkarnir segjast hafa fengið að sjá slík skilaboð frá einni nunnu, sem kvartaði undan framferði ábótans í lok síðasta árs. Ásakanirnar á hendur Xuecheng eru sögð enn ein birtingarmynd MeToo-byltingarinnar í Kína. Xuecheng er háttskrifaður í landinu; hann fer fyrir samtökum búddista í Kína og er meðal ráðgjafa ríkisstjórnarinnar. Rúmlega milljón manns fylgjast með honum á samfélagsmiðlinum Weibo. Í færslu á miðlinum skrifar klaustrið að það muni fara fram á rannsókn á málinu en ítrekaði að Xuecheng neitaði allri sök. Það bætti um betur og segir að ásakanirnar séu byggðar á fölsuðum gögnum sem settar séu fram til þess eins að sverta mannorð munksins.
Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira