Versta markatala FH-liðsins í sextán ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. ágúst 2018 14:30 FH-ingurinn Hjörtur Logi Valgarðsson í leiknum á móti ÍBV í gær. Vísir/Bára
FH-ingar eru ekki lengur með hagstæða markatölu í Pepsi-deildinni eftir 2-0 tap á móti ÍBV í gær. Það þarf að fara alla leið aftur til ársins 2002 til að finna slakari markatölu hjá FH-liðinu þegar svona langt er liðið á Íslandsmótið. Markatala FH er nú 24-24, sex mörkum verri en í fyrra sem jafnframt var versta markatala liðsins á þessum tímapunkti í sjö ár. Það þarf síðan að fara allt aftur til sumarsins 2002 til að finna verri markatölu FH eftir sextán leiki. Sigurður Jónsson var þá þjálfari FH og markatalan eftir fyrstu sextán leikina var eitt mark í mínus (23-24). Fyrir sextán árum hafði FH ekki unnið neinn titil í meistaraflokki karla en FH hefur unnið átta Íslandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla frá árinu 2004. Í fyrra var FH í fyrsta sinn í fimmtán ár ekki meðal tveggja efstu liðanna og í kjölfarið urðu þjálfaraskipti í Krikanum. Ólafur Kristjánsson tók þá við liðinu af Heimi Guðjónssyni. Ólafur gerði miklar breytingar á leikmannahópi FH en hefur ekki tekist að snúa við þróun síðustu ár. Niðursveiflu FH á undanförnum árum má kannski sjá í þróun markatölu liðsins eftir sex leiki. Markatala FH eftir sextán umferðir er nefnilega að lækka sjötta árið í röð. Hún var +21 mörk sumarið 2012 en hefur lækkað á hverju ári síðan.Markatala FH eftir 16 leiki- 12 liða deild - 2018: 0 (24-24) 2017: +6 (24-18) 2016: +13 (24-11) 2015: +18 (37-19) 2014: +19 (30-11) 2013: +20 (34-14) 2012: +21 (38-17) 2011: +14 (33-19) 2010: +5 (29-24) 2009: +29 (45-16) 2008: +19 (35-16)- 10 liða deild - 2007: +16 (39-23) 2006: +13 (26-13) 2005: +39 (47-8) 2004: +13 (27-14) 2003: +2 (26-24) 2002: -1 (23-24)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Scholes óttast það að Man. United verði fallbaráttu á næsta ári Enski boltinn Bellingham tryggði Real sigur með síðustu snertingu leiksins Fótbolti Dómarinn spilaði fyrir lið sem hann dæmdi hjá í sömu viku Sport Bellingham: „Þessi var skrýtinn“ Fótbolti Sker af sér eistun ef Man. City tapar fyrir Real Madrid Fótbolti Nottingham Forest slapp með skrekkinn í vítakeppni Enski boltinn „Gott að koma inn á og fá nokkrar mínútur“ Handbolti Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Íslenski boltinn Þorsteinn Leó markahæstur í stórsigri í Evrópudeildinni Handbolti Ein efnilegasta handboltakona Frakka látin Handbolti Fleiri fréttir Andri Rúnar með þrennu fyrir Stjörnuna í kvöld Þorri sagður á heimleið: „Verð þakklátur alla ævina“ Úlfur óvænt rekinn frá Fjölni Framarar fundu strax leið úr skammarkróknum Tvær þrennur í níu marka stórsigri Hrannar með þrennu gegn Þór Sjáðu sigurmark Örvars og önnur mörk úr Lengjubikarnum Íhugaði að lauma mynd af húsinu í myndaalbúm fjölskyldunnar ÍR vann níu FH-inga og Valskonur í stuði Hituðu upp fyrir Grikkina í snjónum: Danna þema hjá Víkingum Martraðarbyrjun Róberts í Víkingstreyjunni Einar heim í Hafnarfjörðinn Húsvíkingurinn frá KR til Þróttar Framarar lausir við Frambanann Cousins búin að semja við Þrótt FH hreppir Rosenörn og Kötlu Fer í Fram eins og pabbi sinn forðum Kristófer endurnýjar kynnin við Óskar Hrafn í KR Aron Sig nýr fyrirliði KR Fram lagði Íslandsmeistara Breiðabliks Heiðdís aftur í Kópavoginn Þjálfarar Vals komu ekki af fjöllum varðandi Katie Katie Cousins í Þrótt eftir að Valur taldi hana of dýra FIFA setti íslensk félög í bann án þess að láta vita „Það fór eitthvað leikrit í gang“ Ísfold Marý til liðs við Víking Reykjavíkurmeistarar KR byrja Lengjubikarinn á sigri Björn sagður rekinn vegna utanfarar í stórafmæli mömmu Róbert Orri semur við Víkinga Berglind Björg strax byrjuð að skora fyrir Blika Sjá meira