Flytja alla af egypsku hóteli eftir dauðsföll Stefán Ó. Jónsson skrifar 24. ágúst 2018 06:54 John og Susan Cooper létust á hótelinu á dögunum. facebook
Bókunarrisinn Thomas Cook hefur ákveðið að flytja alla viðskiptavini sína af egypsku hóteli eftir dularfullt andlát bresks pars. Þau John Cooper og eiginkona hans Susan, sem bæði voru á sjötugsaldri, létust á hótelinu Steigenberger Aqua Magic í borginni Hurghada, sem stendur við Rauðahafið. Bókunarþjónustan sendi frá sér tilkynningu vegna dauðsfallanna þar sem segir að mörgum spurningum sé enn ósvarað um tildrög þeirra. Þar að auki hafi fyrirtækið fengið fleiri tilkynningar frá viðskiptavinum um óvænt og heiftarleg veikindi. Þeim muni því bjóðast gisting annars staðar eða flug aftur til síns heima. Alls er um að ræða 301 viðskiptavin sem ýmist hafði verið á hótelinu eða átti bókaða gistingu þar á næstunni. Thomas Cook segir að málið sé til rannsóknar af þarlendum yfirvöldum og hefur fyrirtækið heitið fullum samstarfsvilja sínum við rannsóknina. Í tilkynningu Thomas Cook segir jafnframt að málið hafi komið fyrirtækinu í opna skjöldu - ekki síst vegna þess að hótelið sem um ræðir hafi flogið í gegnum reglubundið eftirlit í nýliðnum júlímánuði. Thomas Cook er stærsta bókunarþjónusta Bretlandseyja og er talið að næstum 2000 manns séu í Hurghada á vegum fyrirtækisins þessa dagana.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira