Undirbjó sig fyrir tímabilið með Njarðvík með því að spila á móti James Harden Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2018 11:15 Jeb Ivey og James Harden. Mynd/Fésbókin/Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur
Það er ekki slæmt að undirbúa sig fyrir Domino´s deildina í körfubolta 2018-19 með því að spila á móti besti leikmanni NBA-deildarinnar á síðustu leiktíð. Bandaríkjamaðurinn Jeb Ivey mun spila með Njarðvík í Domino´s deild karla í körfubolta í vetur en hann snýr aftur í Ljónagryfjuna eftir meira en ellefu ára fjarveru. Ivey ætlar að mæta til Íslands í flottu formi og hefur verið að undirbúa sig í Bandaríkjunum. Ivey er orðinn 37 ára gamall en er hvergi nærri hættur. Njarðvíkingar vöktu athygli á því á fésbókarsíðu sinni að bakvörðurinn þeirra hafi verið að spila á móti sjálfum James Harden á dögunum. James Harden var kosinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar á síðustu leiktíð en var þá með 30,4 stig og 8,8 stoðsendingar að meðaltali í leik hjá liði sem vann 65 leiki í deildarkeppninni. „Okkar maður Jeb Ivey hefur verið duglegur seinustu vikur að æfa sig fyrir komandi átök í Dominosdeildinni en á dögunum átti hann hörku æfingu á móti MVP NBA deildarinar á síðustu leiktíð James Harden þar sem þeir félagar spiluðu á hvorn annan og að sjálfsögðu hafði okkar maður betur í því einvígi,“ segir meðal annars í færslunni hjá Njarðvíkingum. Jeb Ivey spilaði tvö tímabil með Njarðvíkingum, 2005-06 og 2006-07. Liðið varð Íslandsmeistari fyrra tímabilið og komst líka í úrslitaeinvígið árið eftir en tapaði þá á móti KR. Ivey kom líka til Snæfells í miðjum lokaúrslitum 2010 og hjálpaði liðinu að vinna Íslandsmeistaratitilinn. Hvorki Njarðvík né Snæfell hafa unnið Íslandsmeistaratitilinn síðan að Ivey fór. Ivey fór frá Njarðvík til Þýskalands og hefur einnig spilað í Finnlandi og Frakklandi. Hann varð tvisvar sinnum finnskur meistari með Nilan Bisons Loimaa (2011–12 og 2012–13) en það eru í einu tvö skiptin sem félagið hefur unnið finnska titilinn. Sannur sigurvegari hér á ferðinni.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Óvænt alveg hættur Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport „Ótrúlega heilbrigður og flottur hópur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira