Underwood lýsir sorginni sem fylgir ítrekuðum fósturmissi Stefán Árni Pálsson skrifar 17. september 2018 15:30 Underwood vann American Idol árið 2005.
Carrie Underwood lýsir sorginni þegar hún upplifði fósturmissi í þrígang á tveggja ára tímabili í viðtali á bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS. Á þeim tíma var hún handviss um að hún myndi aldrei eignast annað barn. Söngkonan á einn þriggja ára son með eiginmanni sínum Mike Fisher, sem er fyrrverandi atvinnumaður í íshokkí. Underwood vakti fyrst athygli eftir að hún bar sigur úr býtum í fjórðu American Idol keppninni árið 2005. Hún er einn allra farsælasti sigurvegari keppninnar. Undanfarin ár hafa hjónin reynt að eignast sitt annað barn. Árið 2017 gekk Underwood tvisvar í gengum fósturmissi og svo aftur í upphafi ársins 2018. „2017 var ekki eins og ég hafði ímyndað mér,“ segir tilfinningarík Carrie Underwood í samtali við sjónvarpskonuna Tracy Smith en í dag er Carrie Underwood barnshafandi og eiga hjónin von á sínu öðru barni. „Ég ætlaði að vinna að nýrri tónlist og eignast barn þetta árið. Snemma ársins urðum við ólétt og það gekk ekki upp og slíkt gerist vissulega. Þetta var bara ekki okkar tími. Síðan urðum við aftur ólétt um vorið og aftur misstum við fóstur. Síðan aftur í byrjun ársins 2018 og enn eina ferðina misstum við fóstur.“Þarna varð ég reið Underwood segist hafa unnið sig í gegnum sorgina með því að semja tónlist. „Ég þurfti síðan að setja upp ákveðna grímu og sýna að allt væri í himnalagi, en stundum er það bara ekki hægt. Ég hef alltaf verið hrædd um að verða reið út í lífið, og mér finnst ég ekki geta það. Ég hef verið svo ótrúlega heppin og á yndislegan son og get ekki kvartað yfir miklu. Það hefur alltaf allt gengið upp hjá mér og mér hefur ekki fundist eins og ég hafi leyfi til þess að verða reið. En þarna varð ég reið.“ Eitt kvöldið hélt Underwood að hún væri að upplifa fjórða fósturmissinn á stuttum tíma og þá leitaði hún til guðs. „Ég skreið upp í til sonar míns og hágrét. Ég hugsaði af hverju er ég alltaf að verða ólétt ef ég get ekki eignast barn. Þarna talaði ég við guð og sagði honum í raun og veru hvernig mér leið, og ég held að það hafi skipt sköpum. Þetta var á laugardegi og síðan á mánudeginum fór ég til læknis í raun bara til að fá það staðfest að ég hefði misst fóstur. Þá kom í ljós að allt var í lagi.“Hér að neðan má sjá viðtalið við Carrie Underwood.
Mest lesið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Það allra besta að gráta í gufu Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Listabarn á leiðinni Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Sjá meira