Innlent

Á 152 kílómetra hraða á Reykjanesbrautinni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Umræddur töluvert yfir hámarkshraða á Reykjanesbrautinni.
Umræddur töluvert yfir hámarkshraða á Reykjanesbrautinni. Vísir/Vilhelm
Á annan tug ökumanna hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum það sem af er vikunni. Sá sem hraðast ók mældist á 152 kílómetra hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Ökumannsins bíður 230 þúsund króna sekt, svipting ökuleyfis í tvo mánuði og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Í vikunni voru skráningarnúmer einnig fjarlægð af fáeinum bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×