Innlent

Braust inn á hótel í Vesturbænum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Viðkomandi hafði á brott með sér áfengi.
Viðkomandi hafði á brott með sér áfengi. Vísir/Vilhelm
Skömmu fyrir miðnætti í gær barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um einstakling sem brotist hafði inn á hótel í Vesturbænum. Viðkomandi hafði á brott með sér áfengi og klink en var handtekinn nokkru síðar og vistaður í fangaklefa. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Um klukkan 1 í nótt var tilkynnt um einstakling sem hafði lamið dyravörð á skemmtistað í miðborginni. Dyravörðurinn hlaut óveruleg meiðsli og engar kröfur voru gerðar á hendur árásarmanninum.

Þá var einn ökumaður stöðvaður í Hafnarfirði skömmu eftir miðnætti og reyndist hann aka undir áhrifum fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×