„Það var bara röð þegar við opnuðum. Hún var ekkert löng en það var samt röð. Svo var bara sá dagur brjálaður og stöðugt rennerí á laugardaginn líka þannig að við þurftum að loka klukkan fimm,“ segir Ólafur Örn Ólafsson sem er einn eiganda vagnsins ásamttónlistarmanninum Emmsjé Gauta og hjónunum Rakel Þórhallsdóttur og Jóhanni Guðlaugssyni
Ólafur Örn stóð vaktina í gær þegar blaðamann bar að garði en þá var hann að þrífa og gera klárt fyrir daginn í dag. Ekki var hægt að hafa opið í gær þar sem allt kláraðist og ekki hægt að fylla á það sem vantaði á sunnudegi.
SOLD OUT! Við eigum ekkert til svo við neyðumst til að hafa lokað í kvöld og á morgun. Opnum dyrnar aftur á mánudaginn. Takk fyrir að taka vel á móti okkur. pic.twitter.com/XR6GBsbl6j„Ég er að reyna að þrífa og að pikkla allan lauk sem ég á fyrir morgundaginn,“ segir Ólafur Örn sem segir að ekki hafi komið til greina að fara í Bónus eða aðra verslun til þess að halda staðnum opnum á laugardaginn eða í gær.
— Hagavagninn (@hagavagninn) November 10, 2018
„Við erum með sérblandað hakk í borgarana og viljum halda okkur við það. Það er þess vegna sem þeir eru góðir,“ segir Ólafur Örn.
Staðurinn átti að vera opinn til klukkan níu á laugardaginn og annað eins í gærkvöldi en þrátt fyrir að Ólafur Örn sé svekktur með að hafa ekki getað haft opið fyrir viðskiptavini eins og til stóð sé þó góðs viti að viðtökurnar hafi verið svo góðar að allt hafi klárast. Það muni þó ekki koma fyrir aftur að staðurinn þurfi að loka vegna vinsælda.
„Ég vona bara að allir dagar verði svona.“
