WOW millilendir á leiðinni til Los Angeles Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 5. desember 2018 14:28 Ein af A330 Airbus flugvélunum. Vísir/Steingrímur Þórðarson
Flugvélar WOW air millilenda þessa dagana í Edmonton í Kanada á flugleiðinni frá Keflavík til Los Angeles og til baka. Viðskiptablaðið greinir frá þessu og vísar í ferðaupplýsingar á vef flugfélagsins. Þar má sjá að áætlað er 20-30 mínútna stopp í kanadísku borginni til að fylla á eldsneyti. WOW air skilaði á dögunum fjórum flugvélum úr flugflotanum sem er allur á leigu. Þar af voru tvær langdrægar A330 Airbus vélar sem notaðar hafa verið í flug til vesturstrandar Bandaríkjanna. Þar með er bara ein langdræg A330 Airbus vél eftir hjá WOW sem flugfélagið ætlar að nýta í áætlunarflug til Indlands sem hefst á morgun. VB vísar í fjárfestakynningu Pareto vegna hlutabréfaútboðs WOW air frá því í haust þar sem fram kemur að hámarksdrægni fyrrnefndra Airbus véla sé um 11.100 kílómetrar á meðan drægni annarra véla í flotanum sé 6.850 kílómetrar. Flugleiðin frá Keflavík til Los Angeles er rúmlega 6.900 kílómetrar og því þarf að koma til millilendingar. Bill Franke, stofnandi og aðaleigandi Indigo Partners, er nú staddur á Íslandi og fundaði í gær með Skúla Mogensen og öðrum starfsmönnum WOW air vegna kaupa á hlut í félaginu sem eru ófrágengin.
Fréttir af flugi WOW Air Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira