Guðmundur Helgi: Köstum þessu frá okkur í restina Arnar Geir Halldórsson skrifar 3. febrúar 2019 21:17 Guðmundur Helgi Pálsson vísir/bára
Guðmundur Helgi Pálsson, þjálfari Fram, var hundfúll í leikslok eftir að hafa séð sína menn liggja fyrir KA í mikilvægum leik í Olís-deild karla í kvöld. „Það er rándýrt fyrir okkur að tapa þessum leik. Mér fannst við ekki hafa trú á verkefninu, það var fyrst og fremst það sem klikkaði. Við spiluðum ágætis vörn á köflum en svo vorum að gera aulamistök sem gáfu þeim færi á að skora beint í bakið á okkur. Við fáum fullt af dauðafærum sem við nýtum ekki og erum með allt of mikið af töpuðum boltum,“ segir Guðmundur Helgi. Framarar áttu engin svör við framliggjandi vörn KA-manna. Voru Guðmundur og hans menn ekki búnir að undirbúa sig undir það að KA-menn myndu verjast þeim svo framarlega? „Jú við vorum búnir að undirbúa það. Það er eitt að tala um hlutina og annað að gera þá. Menn verða að þora þegar komið er inn á völlinn. Við vorum staðir og vorum að hreyfa okkur of lítið en vorum samt alltaf inni í leiknum. Við köstum þessu frá okkur í restina,“ segir Guðmundur. Framarar eru í fallsæti sem stendur en eru enn að horfa á að komast í úrslitakeppnina. „Nú eru átta leikir eftir og það er úrslitaleikur í hvert skipti. Við verðum bara að fara að ná í stig. Við ætlum okkur að fara í 8-liða úrslit. Það er ekkert leyndarmál en þá þurfum við líka að taka fleiri stig og til þess þurfa fleiri menn að skila betri árangri heldur en í dag,“ segir Guðmundur að lokum.
Olís-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun og viðtöl: KA - Fram 24-18 │KA-menn stigu stórt skref frá fallbaráttunni KA-menn unnu öruggan sigur á Fram og eru nýliðarnir nú um miðja deild. 3. febrúar 2019 20:30 Mest lesið Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Körfubolti Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Sport Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt Enski boltinn Sigurvegarar krýndir í Reykjavíkurmaraþoninu Sport Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Íslenski boltinn Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Handbolti De Bruyne gerði gæfumuninn gegn Mikael Agli og félögum Fótbolti De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Enski boltinn Sigurmark á lokamínútunni í fyrsta leiknum í endurkomu Mourinhos Fótbolti Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu hvernig Hull og Brentford fóru með United og Spurs og öll mörkin úr enska Vesen hjá Palace: Mateta heldur því fram að lokaár samningsins sé ógilt De Zerbi ósáttur: „Vorum ekki tilbúnir að berjast“ Brentford tók Tottenham í karphúsið Góð byrjun hjá strákunum hans Moyes Glæsimark kom ekki í veg fyrir nýliðasigur Tryggði sigur beint úr aukaspyrnu undir blálokin „Þeir litu ekki út fyrir að vera í formi“ Nýliðarnir lögðu Rauðu djöflana í fyrsta leik Sjáðu Skytturnar á skotskónum í fyrsta leik Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Curtis Jones farinn til Inter Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea Konsa orðinn leikmaður Arsenal Spurs að spreða: Þrefalt dýrari eftir tvö mörk á tveimur árum Eiður ánægður með hvað Chelsea hefur losað sig við marga leikmenn Liverpool fær höfnun frá Brighton Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Sjá meira
Umfjöllun og viðtöl: KA - Fram 24-18 │KA-menn stigu stórt skref frá fallbaráttunni KA-menn unnu öruggan sigur á Fram og eru nýliðarnir nú um miðja deild. 3. febrúar 2019 20:30