Á fjórða tug hermanna féll í sjálfsmorðsárás í Kasmír Kjartan Kjartansson skrifar 14. febrúar 2019 16:48 Fórnarlömb árásarinnar voru félagar í vopnaðri sveit sem styður indverska herinn. Vísir/EPA
Sjálfsmorðssprengjuárás felldi að minnsta kosti 34 félaga í indverskri vopnaðri sveit í Kasmírhéraði í dag. Árásin er sú mannskæðasta þar í fleiri ár. Bíl fullum af sprengiefni var ekið inn í rútu sem var á leið með sveitina til borgarinnar Srinagar, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Lögreglufulltrúi segir að 44 hafi verið um borð í rútunni og að nokkrir séu þungt haldnir. Pakistanskur hópur íslamista hefur lýst yfir ábyrgð á ódæðinu. Indverjar og Pakistanar deila um yfirráð í Kasmírhéraði en árásin átti sér stað í indverska hluta héraðsins. Narendra Modi, forsætisráðherra Indlands, fordæmdi árásina sem hann kallaði „fyrirlitlega“. Mannskæðasta árásin á indverskt herlið til þessa átti sér stað árið 2002 þegar vígamenn drápu 31 í herstöð í Kaluchak. Flestir þeirra voru óbreyttir borgarar og ættingjar hermanna. Sautján indverskir hermenn féllu í árás vígamanna á herstöð í Uri árið 2016.
Indland Pakistan Mest lesið „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Nafngreina árásarmanninn í Manchester Erlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Rauk upp úr flugvél Jet2 Innlent Föst á Spáni næstu mánuði vegna meðgöngukvilla Innlent Loka leikskóladeild á Stöðvarfirði vegna manneklu Innlent Refsing fyrir að reyna að myrða lækni þyngd Innlent Ragnhildur tekur við Kveik Innlent Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Erlent Eðlilegt að Ísland skoði að taka þátt Innlent Fleiri fréttir Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Ná ekki að leika árangur Wagner eftir Sjá meira