WOW air náði sáttum við leigusala félagsins Hörður Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifa 27. febrúar 2019 06:00 Skúli Mogensen, forstjóri og eigandi WOW air. Vísir/vilhelm
Forsvarsmenn WOW air gengu undir lok síðustu viku frá heildstæðu samkomulagi við leigusala lággjaldaflugfélagsins, samkvæmt heimildum Markaðarins. Með samkomulaginu hefur síðasta skilyrðinu sem stendur í vegi fyrir fjárfestingu Indigo Partners í flugfélaginu verið fullnægt og er nú unnið að því að leggja lokahönd á viðskiptin. Samkomulag WOW air við leigusalana er þannig mikilvægur áfangi í viðræðum flugfélagsins, sem Skúli Mogensen stýrir, og bandaríska fjárfestingafélagsins en vonir hafa staðið til þess að kaup síðarnefnda félagsins á 49 prósenta hlut í íslenska félaginu gangi í gegn fyrir lok þessa mánaðar. Sem kunnugt er rennur frestur sem skuldabréfaeigendur WOW air veittu félaginu til þess að ná samkomulagi við Indigo Partners út á morgun, 28. febrúar. Unnið er hörðum höndum að því þessa dagana að ganga endanlega frá viðskiptunum, eftir því sem heimildir Markaðarins herma, en ráðgjafar félaganna vinna nú meðal annars að því að ljúka gerð lögfræðilegrar áreiðanleikakönnunar. Á meðal þeirra mála sem WOW air þurfti að leiða til lykta til þess að viðræðurnar við Indigo Partners gengju eftir voru uppgjör leigusamninga við írsku flugvélaleiguna Avolon vegna fjögurra nýrra Airbus A330 breiðþota. Gengið var frá umræddum tólf ára samningum snemma árs 2017 og átti flugfélagið að fá tvær þotanna afhentar í lok síðasta árs og tvær í lok þessa árs. Rætt hefur verið um að WOW air þyrfti að greiða verulegar fjárhæðir, sem hlaupa á hundruðum milljóna, til þess að losna undan samningunum og var uppgjör samninganna á meðal stærstu úrlausnarefna flugfélagsins á meðan á viðræðunum við Indigo Partners stóð. Auk samkomulags við leigusala WOW air fólust skilyrði kaupa bandaríska fjárfestingafélagsins meðal annars í því að flugfélagið næði sáttum við skuldabréfaeigendur félagsins um að þeir féllu frá kaupréttum að hlutafé í því, eins og þeir samþykktu einróma um miðjan síðasta mánuð. Jafnframt féllust þeir á að lengja skuldabréfin um tvö ár og afskrá þau úr kauphöll.WOW Air hefur farið í gegnum mikinn öldudalVísir/VilhelmÞá var það enn fremur á meðal skilyrða kaupanna að WOW endurskipulegði leiðakerfi sitt og flota en félagið greindi sem kunnugt er frá því um miðjan desembermánuð að floti þess yrði skorinn niður úr 20 þotum í 11 og stöðugildum fækkað um 350. Áætlar flugfélagið að ferja um það bil 2,1 milljón farþega í ár borið saman við um 3,5 milljónir farþega í fyrra. Indigo Partners, sem Bill Franke stofnaði árið 2002, hefur heitið því að fjárfesta fyrir allt að 75 milljónir dala, jafnvirði 9 milljarða króna miðað við núverandi gengi, í WOW air. Hefur félagið tekið fram að endanleg fjárhæð fjárfestingarinnar, sem verður aðallega í formi láns til tíu ára með breytirétti í hlutafé, muni ráðast af því hver fjárþörf flugfélagsins verður á meðan rekstri þess verður snúið við. Bandaríska fjárfestingafélagið mun til að byrja með eignast 49 prósenta hlut í flugfélaginu, gangi kaupin eftir, en kjósi það hins vegar að nýta sér breytirétt, sem kveðið er á um í skilmálum lánssamnings félaganna tveggja, gæti það eignast stærri hlut. Tap WOW air nam 33,6 milljónum dala, sem jafngildir um 4 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum síðasta árs en til samanburðar tapaði félagið 13,5 milljónum dala á sama tímabili árið 2017. Tekjur flugfélagsins námu liðlega 501 milljón dala, um 59,8 milljörðum króna, á fyrstu níu mánuðum ársins og jukust um 31 prósent frá sama tímabili í fyrra þegar þær voru tæpar 372 milljónir dala. Rekstrarkostnaðurinn var hins vegar 466,9 milljónir dala á tímabilinu og hækkaði um tæplega 46 prósent frá sama tímabili árið 2017.
Airbus Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi WOW Air Tengdar fréttir Stefnir í tíu prósenta samdrátt á flugsætum í sumar Icelandair áformar að auka sætaframboð sitt yfir sumartímann um 14% í ár frá því sem var í fyrra. Áætlanir gera ráð fyrir að framboð sæta hjá WOW air dragist saman um 44%. 18. febrúar 2019 14:42 Varar við „fölskum orðrómum“ Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi WOW Air, fullvissar starfsmenn flugfélagsins um það að viðræður við fjárfestingafélagið Indigo Partners gangi vel. 18. febrúar 2019 15:26 Flugfélagafrelsarinn sagður vilja bjarga „versta flugfélagi heims“ Segir Bill Franke ekki leggja krónu í rekstur án þess að hafa eitthvað um reksturinn að segja. 4. febrúar 2019 18:21 Mest lesið Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Neytendur Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Tuttugu tonn af íþróttanammi á sextíu dögum Neytendur Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Viðskipti innlent Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Fleiri fréttir Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sektað fyrir að auglýsa of mikið fyrir Áramótaskaupið Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Endurbættur Kaffivagn opnar aftur í dag Gleðiefni að fjármálaráðherri tali um aðhald í ríkisfjármálum Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðunina Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Sjá meira
Stefnir í tíu prósenta samdrátt á flugsætum í sumar Icelandair áformar að auka sætaframboð sitt yfir sumartímann um 14% í ár frá því sem var í fyrra. Áætlanir gera ráð fyrir að framboð sæta hjá WOW air dragist saman um 44%. 18. febrúar 2019 14:42
Varar við „fölskum orðrómum“ Skúli Mogensen, stofnandi og eigandi WOW Air, fullvissar starfsmenn flugfélagsins um það að viðræður við fjárfestingafélagið Indigo Partners gangi vel. 18. febrúar 2019 15:26
Flugfélagafrelsarinn sagður vilja bjarga „versta flugfélagi heims“ Segir Bill Franke ekki leggja krónu í rekstur án þess að hafa eitthvað um reksturinn að segja. 4. febrúar 2019 18:21
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent
Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Viðskipti innlent