Kunni að hafa bakað Primera Air tjón Hörður Ægisson skrifar 20. febrúar 2019 07:30 Andri Már Ingólfsson, fyrrverandi eigandi Primea Air á Íslandi.
Rannsóknir skiptastjóra þrotabús Primera Air á Íslandi, sem var í eigu Andra Más Ingólfssonar, hafa „leitt í ljós að mögulegt sé að fyrirsvarsmenn félagsins hafi bakað því tjón“ í að minnsta kosti tveimur tilvika. Þá hefur skiptastjóri þrotabúsins, Eiríkur Elís Þorláksson hæstaréttarlögmaður, það til skoðunar „hvernig staðið var að reikningsskilum þrotamannsins að öðru leyti“. Þetta kemur fram í skýrslu skiptastjóra sem var lögð fram á skiptafundi þrotabús Primera Air ehf. í gær og Markaðurinn hefur undir höndum. Rekstur Primera Air og erlendra dótturfélaga stöðvaðist í október í fyrra þegar félögin voru tekin til gjaldþrotaskipta. Lýstar kröfur í búið nema rúmlega 10 milljörðum króna og af þeim nema kröfur frá Arion banka samtals um 4,8 milljörðum. Í skýrslunni segir meðal annars að athugun skiptastjóra á reikningsskilum flugfélagsins kunni að leiða til þess að þrotabúið geti sótt frekari fjárkröfur á hendur þeim sem báru ábyrgð á reikningsskilunum. Endurskoðendur Primera Air voru frá ráðgjafarfyrirtækinu Deloitte. Í umfjöllun Markaðarins í nóvember kom fram að endurskoðendur sem höfðu rýnt í ársreikninga félaga innan Primera-samstæðunnar fyrir 2017 teldu vafa leika á því að þeir væru í samræmi við lög, reglur og góða endurskoðunarvenju. Töldu þeir til að mynda vandséð að víkjandi lán sem Primera Air var veitt frá tengdum aðila geti talist til eigin fjár félagsins en án lánsins hefði eigið fé þess verið neikvætt um 16,3 milljónir evra, jafnvirði 2,2 milljarða króna, í árslok 2017. Þá sögðu þeir óvíst hvort félaginu hafi verið heimilt að innleysa 13,3 milljóna evra söluhagnað á árinu 2017 vegna endursölu á Boeing-flugvélum sem voru enn í smíðum og yrðu afhentar í apríl árið 2019.Flugvél hins sáluga Primera Air.Vísir/gettyAndri Már, sem var aðaleigandi Primera-samstæðunnar, hafnaði því að ranglega hafi verið staðið að gerð ársreikninga félaga innan ferðaþjónustusamstæðunnar. Í lok nóvembermánaðar lýsti skiptastjóri yfir riftun á tveimur ráðstöfunum Primera Air að fjárhæð samtals um 520 milljónir króna, að því er fram kemur í skýrslunni. Þeim riftunum hefur báðum verið mótmælt en skiptastjóri þrotabúsins hyggst höfða riftunarmál, meðal annars á hendur Andra Má persónulega, og láta reyna á endurheimt þeirra verðmæta fyrir dómstólum. Á skiptafundi Primera Air í gær var ákveðið að Arion banki, sem stærsti kröfuhafi búsins, fengi frest til tveggja vikna til að taka afstöðu um hvort höfða eigi riftunarmál, samkvæmt heimildum Markaðarins. Bankinn þurfti að færa niður tæplega 3 milljarða króna í ábyrgðum og lánveitingum vegna gjaldþrots Primera í fyrra. Í skýrslu skiptastjóra segir að komið hafi fram við skýrslutökur að töluverð seinkun hafi orðið á afhendingu Airbus flugvéla til Primera á árinu 2018. Það hafi kostað félagið umtalsverða fjármuni að leigja aðrar vélar í staðinn til að sinna áætlunarflugi. Engar bætur hafi fengist vegna þessara tafa og fram kemur í skýrslunni að skiptastjóri hafi leitast við að fá upplýsingar frá stjórnendum Primera svo hægt sé að meta hvort grundvöllur geti verið fyrir skaðabótakröfu. Erfiðlega hafi hins vegar gengið að fá þær upplýsingar.Primera Air hætti í haust starfsemi eftir fjórtán ár í rekstri og var flugfélagið, ásamt dótturfélögum sínum í Danmörku og Lettlandi, í kjölfarið tekið til gjaldþrotaskipta. Stjórnendur flugfélagsins sögðu að horfur á flugmarkaði hefðu farið hratt versnandi, með hækkandi olíuverði og lækkandi flugfargjöldum, og ekki hefði tekist að tryggja félaginu fjármögnun til langs tíma.Nordicphotos/GettySamþykktar lýstar veðkröfur í búið – frá Arion banka og Landsbankanum – eru samtals 1.975 milljónir og af þeim nema kröfur Arion banka 1.755 milljónum. Fram kemur í skýrslu skiptastjóra að stærstur hluti viðurkenndra veðkrafna Arion banka muni enda sem almenn krafa þar sem undirliggjandi veðtrygging bankans dugar ekki til fullnustu veðkrafnanna. Samtals nema almennar kröfur, án tillits til veðkrafna Arion banka, um 7.080 milljónum króna. Arion banki er einnig stærsti almenni kröfuhafinn með lýstar kröfur upp á rúmlega 2,5 milljarða en aðrir stórir kröfuhafar eru Primera Travel Group, sem hélt utan um ferðaskrifstofurekstur sem Andri keypti í október í gegnum nýtt eignarhaldsfélag, með 1.478 milljóna kröfu og þá hefur félag í eigu dönsku ferðaskrifstofunnar Bravo Tours lýst kröfu í búið að fjárhæð tæplega 1.400 milljónir króna. Eftirstæðar kröfur í þrotabúið nema samtals um 1.019 milljónum króna. Ekki hefur verið tekin afstaða til almennra og eftirstæðra krafna að svo stöddu. Í skýrslunni segir að að teknu tilliti til áfallins óreikningsfærðs skiptakostnaðar upp á 12 milljónir, sem og kostnaðar sem mun falla til við þær aðgerðir skiptastjóra sem hann hyggst ráðast í, muni ekki fást neitt upp í almennar kröfur nema búið endurheimti þá fjármuni sem aðgerðir skiptastjóra miða að að verði sóttir.
Birtist í Fréttablaðinu Fréttir af flugi Tengdar fréttir Segjast ekki hafa lofað Primera Air láni Arion banki svarar ummælum Andra Más Ingólfssonar 13. desember 2018 14:51 „Ekkert óeðlilegt að það verði smá tveggja prósenta niðursveifla af ferðamönnum til landsins“ Framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir aðra þætti heldur en fækkun erlendra ferðamanna hingað til lands ógna ferðaþjónustunni 29. janúar 2019 20:15 Segist hafa veðsett húsnæði fjölskyldunnar til að bjarga ferðaskrifstofunum Ferðaskrifstofur Travelco, sem áður hétu Primera Travel, töpuðu fimm milljörðum króna á gjaldþroti flugfélagsins Primera Air í októberbyrjun. 13. desember 2018 10:17 Mest lesið Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Viðskipti innlent Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Viðskipti innlent Gengi Alvotech hrynur Viðskipti innlent Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Viðskipti innlent „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ Viðskipti innlent „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Viðskipti innlent 25 sagt upp í fiskvinnslu Viðskipti innlent „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Viðskipti innlent Gengi Alvotech aldrei lægra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Hefur aldrei upplifað aðra eins óvissu á þrettán ára ferli Tiltölulega lítil áhrif af breytingum Seðlabankans Telur að aðrar ferðaskrifstofur muni fylgja í kjölfarið Tango Travel hættir vegna gjaldþrots Play Of snemmt að segja hvort vaxtadómurinn geri lán dýrari eða ódýrari Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Gervigreindarknúið snjallsiglingarkerfi hlaut Nýsköpunarverðlaunin Högnuðust um tæpa sjö milljarða Tilkynna breytingar á lánaframboði Sverrir Einar söðlar um og selur Þrastalund Leigjendum muni fjölga um fimm þúsund fram til 2030 Bein útsending: Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni Bjarni Geir Alfreðsson matreiðslumaður látinn Færir sig í Borgartúnið eftir stutta dvöl hjá ÍSÍ Verðbólguþróunin áhyggjuefni Greiðir sér út allt að fimmtíu milljónir Verðbólga ekki meiri síðan í janúar Hagnaður bankans 8,2 milljarðar á þriðja ársfjórðungi Sjá meira
Segjast ekki hafa lofað Primera Air láni Arion banki svarar ummælum Andra Más Ingólfssonar 13. desember 2018 14:51
„Ekkert óeðlilegt að það verði smá tveggja prósenta niðursveifla af ferðamönnum til landsins“ Framkvæmdastjóri Íslandsstofu segir aðra þætti heldur en fækkun erlendra ferðamanna hingað til lands ógna ferðaþjónustunni 29. janúar 2019 20:15
Segist hafa veðsett húsnæði fjölskyldunnar til að bjarga ferðaskrifstofunum Ferðaskrifstofur Travelco, sem áður hétu Primera Travel, töpuðu fimm milljörðum króna á gjaldþroti flugfélagsins Primera Air í októberbyrjun. 13. desember 2018 10:17