Öflugur þriggja strokka sportari Finnur Örn Thorlacius skrifar 21. mars 2019 07:45 Þriggja strokka sportbíll Gordons Murrey mun aðeins vega 850 kíló og verða þeim mun sprækari.
Gordon Murrey, sem hannaði McLaren F1 sportbílinn, vinnur nú að smíði agnarsmás en öflugs sportbíls. Gordon Murrey Automotive vinnur nú að smíði lítils sportbíls með 1,5 lítra og þriggja strokka Dragon vél frá Ford sem skilar 215 hestöflum. Þessi vél er sú sama og finna má í Ford Fiesta ST en í bíl Gordons Murrey skilar hún auka 18 hestöflum. Ford Fiesta bíllinn vegur 1.260 kíló en sportbíll Gordons Murrey mun aðeins vega 850 kíló og verða þeim mun sprækari. Það mun gera þennan bíl öflugri per kíló en til dæmis Alfa Romeo 4C og eru 229 hestöfl á hvert tonn í sportbílnum en 202 hestöfl per tonn eru í Alfa Romeo 4C. Því ætti hann að vera sneggri úr sporunum en síðarnefndi bíllinn. Í Lotus Elise 1,8 S Cup er til dæmis 231 hestafl per tonn. Hinn nýi sportbíll Gordons Murrey, en hann er jú einna þekktastur fyrir það að hafa hannað McLaren F1 bílinn, mun fá nafnið T43 og bíllinn á að vera venjulegur götubíll en ekki brautarbíll.Ál og koltrefjar skýra léttvigtina Bíllinn á að vera með helstu nauðsynjar venjulegs ökutækis og verður með miðstöð, hljóðkerfi og leiðsögukerfi og fullt af öryggispúðum þrátt fyrir litla þyngd. Bíllinn er einkar smávaxinn og lengd hans aðeins 3,6 metrar, breiddin 1,75 metrar, hæðin 1,24 metrar og bilið milli öxla 2,5 metrar. Undirvagninn er að mestu smíðaður úr áli og yfirbyggingin úr koltrefjum og það skýrir að mestu léttvigtina. Bíllinn mun líkjast talsvert McLaren F1 en bara miklu minni. Hann verður með 6 gíra beinskiptingu og verður á 18 tommu léttmálmsfelgum. Bíllinn verður með frábært loftflæði og mun kljúfa loftið betur en flestir aðrir bílar. Ef til vill það besta við þennan nýja bíl er að hann á ekki að kosta meira en 40.000 pund, eða um 6,4 milljónir króna. Það mun gera hann 1,1 milljón ódýrari en Alpine A110 sportbílinn og 1,9 milljónum ódýrari en Porsche Cayman. Ekki er enn ljóst hvenær fyrstu T43 bílarnir koma á götuna.
Birtist í Fréttablaðinu Bílar Mest lesið Flugvél lenti á hvolfi í Mosfellsbæ Innlent Áreitt í sturtuklefa Sundhallarinnar í tvígang: „Stend þarna bara náföl og hágrátandi“ Innlent Grunaður í tengslum við eld á heimili eiginkonu sinnar Innlent Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Innlent Íslandi lýst sem „nútíma fámennisveldi“ uppfullu af spillingu Innlent Frambjóðendur Miðflokksins keppast um að fagna fjölbreytileikanum Innlent Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Erlent „Þessi uppsögn snerist um eitthvað miklu stærra heldur en einn mann“ Innlent „Hvað eruð þið að biðja mig um og hvers vegna? Hvar ætti ég að hafa dvalið?“ Innlent Kölluð út á hæsta forgangi vegna sundmanns í Þingvallavatni Innlent