Gjörsamlega missti það eftir að hafa fengið högg á viðkvæman stað Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2019 21:00 Calvin Abueva dansaði upp á borði eftir þetta ljóta brot sitt. Hann er landsliðsmaður Filippseyja. Skjámynd/Youtube/ESPN5
Filippíski körfuboltamaðurinn Calvin Abueva er væntanlega á leiðinni í langt bann eftir framkomu sína í körfuboltaleik í PBA deildinni um helgina. Calvin Abueva lenti upp á kant við bandaríska körfuboltamanninn Terrence Jones í leik TNT KaTropa og Phoenix Pulse. Terrence Jones átti flottan háskólaferil og spilaði fyrir nokkur lið í NBA-deildinni. Hann er nú kominn til TNT KaTropa á Filippseyjum. Það hafði ýmislegt eflaust gengið á í samskiptum þeirra félaga þegar komið var fram í fjórða leikhlutann í þessum leik. Terrence Jones og félagar í TNT KaTropa voru með örugga forystu en Calvin Abueva var ekki búinn að gefast upp. Eftir smá samstuð á milli þeirra virtist Terrence Jones slá Calvin Abueva á viðkvæman stað. Calvin Abueva engdist um af sársauka á gólfinu en harkaði af sér og hélt áfram. Það sem gerist næst sýndi það aftur á móti að hausinn á honum var algjörlega farinn. Abueva gaf Terrence Jones síðan vænt högg eftir að Jones hafði náð frákasti í sókninni á eftir. Strax á eftir hoppaði Abueva síðan upp á borð og dansaði eggjandi í átt að Jones. Dómarar leiksins ráku Abueva út úr húsi og Terrence Jones endaði leikinn með 40 stig, 10 fráköst og 6 stoðsendingar. Abueva var með 19 stig og 11 fráköst þegar hann var sendur í sturtu. Það má sjá öll þessi skrautlegu samskipti þeirra í fjórða leikhlutanum í myndbandinu hér fyrir neðan.
Körfubolti Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Sjá meira