Félag Guðbjargar hagnast um liðlega milljarð króna Kristinn Ingi Jónsson skrifar 12. júní 2019 08:00 Guðbjörg Matthíasdóttir útgerðarkona. Fréttablaðið/Anton Brink
ÍV fjárfestingafélag, sem er í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur og fjölskyldu, aðaleigenda Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, hagnaðist um ríflega einn milljarð króna á síðasta ári, samkvæmt nýlegum ársreikningi félagsins, og jókst hagnaðurinn um 410 milljónir króna frá fyrra ári. Hagnaður síðasta árs skýrist að mestu af áhrifum dótturfélaga fjárfestingafélagsins sem voru jákvæð um samanlagt 986 milljónir króna. Fjárfestingafélag Guðbjargar, sem fer meðal annars með 89 prósenta hlut í Ísfélagi Vestmannaeyja, átti eignir upp á 15,6 milljarða króna í lok síðasta árs en þar af er hluturinn í útgerðinni bókfærður á um 13,8 milljarða króna. Í ársreikningnum kemur auk þess fram að félagið hafi greitt móðurfélaginu, Fram, 428 milljónir króna í arð á síðasta ári borið saman við 3,3 milljarða króna árið 2017. Auk hlutarins í Ísfélagi Vestmannaeyja á fjárfestingafélagið einnig hlutabréf í meðal annars Símanum og Tryggingamiðstöðinni en félagið komst fyrr á árinu í hóp stærstu hluthafa síðastnefnda félagsins með 1,33 prósenta hlut. Fyrir átti annað félag í eigu fjölskyldunnar, Kristinn, um 1,14 prósent í tryggingafélaginu en til viðbótar eiga félög Guðbjargar hlut í félaginu í gegnum framvirka samninga hjá Íslandsbanka, eins og Markaðurinn hefur áður greint frá.
Birtist í Fréttablaðinu Sjávarútvegur Vestmannaeyjar Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira