Þáttastjórnandi Sprengisands, Kristján Kristjánsson, sagði tón Gunnars Braga í athugasemdum hans til forsætisnefndar mun harðari og bera þess merki að hann sæi ekki eftir þessu.
Gunnar sagði línuna aðeins harðari nú en þegar málið kom upp fyrst en engu að síður gildi þær afsökunarbeiðnir áfram sem hann hafði strax uppi eftir að málið kom upp.
Atriði slitin úr samhengi
Hann sagði sína gagnrýni snúa alfarið að því pólitíska ferli sem málið hefði farið í. Samhengið hafi orðið skýrara, klippurnar sem fjölmiðlar nýttu voru settar í samhengi og þá hafi hann sé ákveðin atriði í öðru ljósi.
Sagði Gunnar að hann vissi ekki hvort málið hefði orðið honum til framdráttar en það væri ekki forsætis- eða siðanefndar að refsa þeim heldur kjósenda eftir tvö ár.
Gunnar sagði persónuvernd hafa dæmd upptökurnar ólöglegar og því hafi Alþingi eytt þeim, var þá ákveðið að styðjast við efni úr fjölmiðlum en Gunnar sagði að það væri vafasamt því fjölmiðlar hér á landi hafi í einhverjum tilfellum ekki reynst þeir bestu.
18 fréttir um Ágúst Ólaf en 70 um hann sjálfan
Nefndin hann því samhengi að fréttastofa Ríkisútvarpsins hafi skrifað átján fréttir um kynferðislega áreitni Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, gagnvart blaðakonu en á sama tíma sjötíu fréttir um hann sjálfan fyrir mun vægari sakir.„Á maður að treysta Ríkisútvarpinu? Það finnst mér ekki,“ sagði Ágúst.

Kristján sagði málflutning Miðflokksmanna, um að Bára Halldórsdóttir hafi verið send á Klaustur til að hljóðrita samtal þeirra, allt því kjánalegan en Gunnar Bragi sagði að sú skoðun Kristjáns gæti breyst ef hann fengi að sjá öll gögn málsins.
Sagði Gunnar að hann teldi það enga tilviljun að manneskja sitji í fjóra tíma til að taka upp samtal þeirra og hefði brugðið sér út fyrir til að taka myndir af þeim.
Ummæli um Írisi ekki kvenhatur
Hann sagði það alfarið rangt að samtalið bæri alfarið merki um andúð þeirra gagnvart konum. Nefndi hann ummæli samflokksmanns síns Bergþórs Ólasonar í garð Írisar Róbertsdóttir, bæjarstjóra í Vestmannaeyjum, þar sem hann Bergþór hafi í raun verið að hæla henni en bent á að hún þætti ekki nægjanlega sæt eða „sexy“ í augum Sjálfstæðismanna til að leiða framboð þeirra.„Af því þeir munu líta á hana þannig,“ sagði Gunnar og vildi meina að þarna hefðu þeir verið að ræða pólitískt landslag.

Átti ekki að kalla Lilju þessu orði
Kristján benti á að þegar Gunnar var utanríkisráðherra hefði hann sett réttindamál kvenna á oddinn á alþjóðavettvangi og þess vegna hafi fólk mögulega brugðist svona illa við ummælum hans um konur. Gunnar spurði á móti hvaða ummæli hann hefði látið falla sem voru á skjön við það stefnumál?Nefndi hann í því samhengi ummæli sín um Lilju Alfreðsdóttur og spurði hvort þau væru virkilega kvenfjandsamlega og bað Kristján um að skipta Lilju út fyrir karlmann og nota annað orð um leið.
Hann tók þó fram að hann átti ekki að kalla Lilju þessu orði en hann hafi verið reiður út í hana út af ákveðnum hlutum og baðst afsökunar á því. Ummæli hans hafi þó ekki breytt þeirra sýn hans að það eigi að efla konur og störf þeirra.
Nefndi Gunnar að í vikunni hafi verið fluttar fregnir af því að aldrei hafi fleiri konur verið í forsvari fyrir sendiskrifstofur Íslands. Sagði hann að það hefði verið ákvörðunum sínum sem utanríkisráðherra að þakka því hann tók þá ákvörðun að skipa ætti fleiri konur. Það hafi hann gert því hann trúi á konur og vilji efla þær.