Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára berjast á Hlíðarenda og fær eitthvað stöðvað KR? Anton Ingi Leifsson skrifar 11. ágúst 2019 08:00 Davíð Þór Viðarsson og Sebastian Hedlund berjast í sumar. vísir/vilhelm
Fimm leikir eru á dagskrá í Pepsi Max-deild karla í dag og kvöld en leikirnir eru liðir í 16. umferð deildarinnar. Víkingur og ÍBV mætast klukkan 16.00 en Eyjamenn eru einungis með fimm stig á botni deildarinnar. Víkingur er í tíunda sætinu en einungis í tíunda sætinu á markatölu. Víkingar hafa einungis unnið þrjá af fimmtán leikjum sínum en einungis þrjú stig eru upp í áttunda sæti deildarinar. Á Skaganum mætast ÍA og Breiðablik en Skagamenn hafa einungis unnið einn af síðustu tíu leikjum. Þeir sitja í 5. sæti deildarinnar. Breiðablik vann loksins leik í síðustu umferð og er í öðru sætinu. Ekkert fær KR stöðvað en liðið er á toppi Pepsi Max-deildarinnar með tíu stiga forskot. Nýliðar HK hafa þó verið á fínu skriði og hafa unnið fjóra af síðustu fimm leikjum. Þeir eru í sjöunda sætinu. KA og Stjarnan mætast svo norðan heiða en KA er í fallsæti og þarf nauðsynlega að fara safna stigum ef ekki illa á að fara. Stjarnan er í 3. sætinu eftir sigur á Víkingum í síðustu umferð. Stórleikur umferðarinnar er svo á Origo-vellinum þar sem Íslandsmeistarar síðustu þriggja ára; Valur (Íslandsmeistarar 2018 og 2017) og FH (Íslandsmeistarar 2017) mætast í mikilvægum leik fyrir bæði lið. Stórveldin hafa bæði verið í vandræðum í sumar en Valur hafa þó aðeins verið að rétta úr kútnum. Valur er í 4. sætinu með 23 stig en FH tveimur sætum neðar með 22 stig. Stigin þrjú mikilvæg í Evrópubaráttunni í kvöld. Umferðinni lýkur svo með leik Fylkis og Grindavíkur annað kvöld en Pepsi Max-mörkin verða einnig á dagskránni annað kvöld klukkan 21.15.Leikir dagsins: 16.00 Víkingur - ÍBV 16.00 ÍA - Breiðablik (Í beinni á Stöð 2 Sport) 16.00 HK - KR 16.00 KA - Stjarnan 20.00 Valur - FH (Í beinni á Stöð 2 Sport)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Fleiri fréttir Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Sjá meira