Rúnar Páll: Dómgæslan var mjög skrítin frá A til Ö eins og oftast hjá Helga Mikael Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. ágúst 2019 21:35 Rúnari Páli var mikið niðri fyrir í leikslok. vísir/bára „
Þú verður að spyrja dómarann að því. Hvernig væri að fá þá í viðtöl til að skera úr um þessa dóma? Þetta er glórulaust að mínu viti. Ég veit ekki á hvað hann dæmdi,“ sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, eftir jafnteflið við Val, 2-2, í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Atvikið sem Rúnar var svo ósáttur með var þegar mark var dæmt af Stjörnunni þegar tæpar 20 mínútur voru eftir. Markið var fyrst dæmt gilt en eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðardómara dæmdi Helgi Mikael Jónasson, dómari leiksins, markið af. „Dómgæslan í þessum leik var mjög skrítin frá A til Ö eins og oftast hjá Helga. Því miður er það þannig. Ég er mjög heitur þannig að það er best að segja sem minnst.“ Stjarnan lenti undir snemma leiks en náði svo heljartaki á leiknum og komst yfir. Valur jafnaði síðan og fékk gullið tækifæri til að vinna en Haraldur Björnsson varði vítaspyrnu Patricks Pedersen. Rúnar var sáttur með frammistöðu sinna manna og fannst hún verðskulda sigur. „Það fannst mér. Þetta er erfiður útivöllur og við komumst yfir. Við vorum klaufar. Svo fannst mér rangstöðufnykur af öðru markinu og líka þegar þeir fengu vítið. Það var kraftur og vinnusemi í okkar liði en við hefðum getað verið rólegri með boltann. Það er ágætt að fá stig hérna og við þurfum bara að vinna FH næst,“ sagði Rúnar að lokum.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Leik lokið: Valur - Stjarnan 2-2 | Dramatískt jafntefli á Hlíðarenda Liðin skiptu með sér stigunum á Hlíðarenda. 26. ágúst 2019 22:30 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Leik lokið: Valur - Stjarnan 2-2 | Dramatískt jafntefli á Hlíðarenda Liðin skiptu með sér stigunum á Hlíðarenda. 26. ágúst 2019 22:30