Atli Már hefur verið valinn listamaður Listahátíðarinnar List án Landamæra. Listahátíðin leggur áherslu á list fatlaðs fólks og verður haldin 5. til 20. október í Gerðubergi.
Hann egir það sínar bestu stundir þegar hann kemur til að vinna að verkum sínum í skólanum. Það gerir hann tvisvar í viku en aðra daga vikunnar starfar hann í Ási vinnustofu og það finnst honum einnig skemmtilegt. „Þar eru margir vinir mínir,“ segir hann frá. „Ég vakna og svo fer ég í vinnuna. En ég teikna alla daga líka,“ segir hann og segist hrifinn af flestum ofurhetjum Marvel. „Marvel er best.“
Hann segist eiga Drakúlabúning sem honum finnst gaman að klæða sig upp í.
![](https://www.visir.is/i/49C5A3C20F7F2155CC4A0720B4EDF2AC28F49D9992E57A4686D71E19BA7E15F3_713x0.jpg)
Atli Már lifir sig með tilþrifum inn í verkin sem einkennast af persónum og fígúrum, til dæmis ofurhetjum, með forvitnilegum smáatriðum og sem eiga hug hans. Það má glögglega sjá að hann hefur mikla og nákvæma þekkingu á myndheimi Marvel. Hann málar oft ofurhetjur með fylgihlutum og í bakgrunni eða umhverfi sem jafnvel aðeins heitustu aðdáendur þeirra þekkja.Um eftirminnileg verk segist hann virkilega ánægður með leðurblökur sem hann hefur málað. „Leðurblökur, Batman og líka Drakúla,“ segir hann og dregur hendurnar upp eins og leðurblökuvængi og hlær.
„Ég er galdramaður,“ útskýrir hann og brosir eftir að hafa hlustað á lýsingu Margrétar á vinnuferli hans.Margrét hefur stillt upp trönum fyrir Atla Má sem vill teikna tröll fyrir blaðamann og ljósmyndara. „Hann hefur einstakan stíl og hefur skapað sterkan myndheim,“ segir Margrét á meðan hann mundar pensilinn. „Það sem mér finnst magnað er hversu fjölhæfur hann er. Hann málar og teiknar af mikilli fagmennsku en hann gerir til dæmis líka skúlptúra, fremur gjörninga, syngur og flytur texta og er stórkostlegur dansari. Það má segja um hann að hann lifi fyrir listina, hann er mikill listamaður og það er dúndrandi sköpun í öllu sem hann gerir,“ segir Margrét.
![](https://www.visir.is/i/101282739751C0E00FED11CAD5639BAE3F26EDEE0E86D4C13C6A4455F2852BB2_713x0.jpg)
![](https://www.visir.is/i/55FCB40E3EC479C4369A7568A9AD71F419C4792A98B36D9E8FE85D830A7BE172_713x0.jpg)