Þrjú stig af síðustu átján mögulegum og Valur gæti átt verstu titilvörn sögunnar í 12 liða deild Anton Ingi Leifsson skrifar 23. september 2019 14:00 Patrick Pedersen í baráttu við Skúla Jón Friðgeirsson í leik liðanna á dögunum. vísir/getty
Valsmenn, sem áttu titil að verja í Pepsi Max-deildinni í ár, eru í 9. sæti deildarinnar er ein umferð er eftir. Valur gerði 2-2 jafntefli við Grindavík á útivelli í gær en það var ekki fyrr en eftir jafnteflið í gær að staðfest væri að Valur spilar í úrvalsdeild á næsta ári. Hefðu þeir ekki náð í jafntefli í gær hefðu þeir enn verið í fallhættu fyrir lokaumferðina þó að það hefði verið ólíklegt að þeir hefðu farið niður enda markatala þeirra mun betri en Grindavíkur. Valsmenn byrjuðu tímabilið hörmulega og náðu einungis í fjögur stig í fyrstu sjö leikjunum en síðan unnu þeir þrjá leiki undir lok júnímánaðar. Þeir fikruðu sig þar með upp töfluna. Gengi liðsins upp á síðkastið hefur hins vegar ekki verið upp á marga fiska. Síðasti sigurleikur liðsins kom gegn Fylki þann 7. ágúst og liðið hefur síðan þá einungis náð í þrjú stig af átján mögulegum. Liðið er nú með 26 stig stig í 9. sætinu og gætu átt verstu titilvörn sögunnar í 12 liða deild. Breiðablik á nú verstu titilvörnina er liðið náði í 27 stig árið 2011 en það ár var einmitt KR líka meistari, líkt og í ár. Valsmenn þurfa því sigur til að komast upp fyrir stigafjölda Blika árið 2011 en geri Valur jafntefli gegn HK í lokaumferðinni þá er liðið með jafn mörg stig og Breiðablik 2011.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Fleiri fréttir Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Sjá meira