Piltarnir sammála um að ágreiningur hafi komið upp Kristín Ólafsdóttir skrifar 23. september 2019 10:04 Salaskóli í Kópavogi. Fréttablaðið/Vilhelm
Lögregla fann hvorki hnífa né barefli í tengslum við átök unglingspilta við Salaskóla í Kópavogi í gær. Þá voru engir sjáanlegir áverkar á neinum piltanna, sem voru þó sammála um að ágreiningur hefði komið upp þeirra á milli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglu barst tilkynning um málið á níunda tímanum í gærkvöldi. Haft var eftir tilkynnanda að hafnaboltakylfur, hnífar og hnúajárn hefðu sést þar á lofti. Í tilkynningu sem lögregla sendi frá sér í morgun segir að brugðist hafi verið skjótt við og lögreglumenn haldið þegar á vettvang. Þegar lögreglu bar að garði voru átökin yfirstaðin. Rætt var við nokkra hlutaðeigandi og þeim síðan ekið til síns heima, þar sem rætt var við foreldra þeirra. „Engir sjáanlegir áverkar voru á neinum piltanna sem komu við sögu og hvorki hnífar né barefli fundust í tengslum við málið. Unglingarnir voru sammála um að til deilna hefði komið en sitt sýndist hverjum um atburðarásina,“ segir í tilkynningu lögreglu. Málið er í rannsókn og unnið í samráði við barnaverndaryfirvöld.
Kópavogur Lögreglumál Tengdar fréttir Hafnaboltakylfur, hnífar og hnúajárn á lofti í árás á unglinga við Salaskóla Lögreglunni barst í kvöld tilkynning um að ráðist hefði verið á unglinga við Salaskóla. 22. september 2019 23:02 Mest lesið Vaktin: Sprengjum rignir enn Erlent Davíð Oddsson er látinn Innlent Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Innlent Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Innlent Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Innlent Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Innlent Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Innlent „Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Fréttir Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Innlent Davíðs minnst á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Átökin breiðast út: Brá illilega þegar nærliggjandi hótel var sprengt í loft upp Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Ákærður fyrir að nauðga konu ítrekað Hringveginum lokað vegna veðurs Davíðs minnst á Alþingi Merki um tengsl við erlenda leyniþjónustu Allt tiltækt lið slekkur eld í Hafnarfirði Skipta alþjóðalög máli eða ekki? Nýtt framboð í Bolungarvík Kristrún minnist Davíðs og víða flaggað í hálfa stöng Tók sambýliskonu sína hálstaki en var sýknaður Minnisstæð heimsókn til Davíðs fyrir jól Voru í safarí þegar þær heyrðu í sprengjuárás Hringvegurinn líklega lokaður til morguns Íslenskir strandaglópar í Dúbaí Leggur lokahönd á þingsályktun um þjóðaratkvæðagreiðslu Vélarvana bátur dreginn til hafnar í Sandgerði Gabríel Douane ákærður fyrir að berja þrjá fangaverði með úri Davíð Oddsson er látinn Ekki nóg af sætum, salernum, mat eða upplýsingum Íslendingar óska eftir aðstoð Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Útilokað að steypa stjórninni með loftárásum Hinsegin vika er að hefjast í Árborg Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Þessi skipa lista Framsóknar í Reykjavík Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Sjá meira
Hafnaboltakylfur, hnífar og hnúajárn á lofti í árás á unglinga við Salaskóla Lögreglunni barst í kvöld tilkynning um að ráðist hefði verið á unglinga við Salaskóla. 22. september 2019 23:02