„Katrín Jakobsdóttir hefði getað afstýrt þessari nýjustu árás“ Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 22. september 2019 20:32 Barnabarn Tryggva Rúnars Leifssonar segir að forsætisráðherra ætti að skammast sín fyrir sinn þátt í Guðmundar- og Geirfinnsmálum. Vísir/Vilhelm „
Katrín Jakobsdóttir þykist hafa gildi og marka stefnu ríkisins, en keppist í reynd við að þjóna kerfi sem brýtur á, lítillækkar og þaggar niður í þeim sem minnstar varnir hafa gegn ofríki hins opinbera,“ skrifar Tryggvi Rúnar Brynjarsson, barnabarn Tryggva Rúnars Leifssonar, í skoðanagrein á Vísi. Tryggvi segir að hann hafi árangurslítið reynt að vekja athygli á því að það hafi ekki allar hliðar Guðmunar- og Geirfinnsmála hafi verið leiddar til lykta með endurupptökuferli síðustu ára. „Satt að segja höfum við, sem ekki höfum getað lokað augunum, engan frið fengið fyrir níði embættismannanna, sem markvisst hafa leitast við að klína skömminni og ábyrgðinni á því hvernig fór - ef ekki hinni lagalegu sekt - á hina fótum troðnu einstaklinga sem dæmdir voru í málunum.“ Gagnrýnir hann sérstaklega það sem Davíð Þór Björgvinsson settur ríkissaksóknari hafi tiltekið fyrir sem ástæður fyrir röngum dómi afa síns, hans meintu persónulegu veikleika. „Lélega greind, sögu áfengis- og vímuefnamisnotkunar, innbyggða undirlægjusemi gagnvart rannsakendum, o.s.frv. - meingallaðar athuganir sem finna má í einhverri geðskýrslu sem var framkvæmd þegar afi minn hafði setið í einangrun í hálft ár. Davíð Þór vildi meina að þessir sálrænu þættir hafi legið að baki játningu afa míns, en ekki svívirðileg og endurtekin brot opinberra starfsmanna á réttindum hans.“Ráðherrarnir undirlægjur Tryggvi sakar lögmennina um þolendaskömm og ráðabrugg í grein sinni. „Greinargerð setts ríkislögmanns, Andra Árnasonar, er beint framhald af þolendaskömmun og þöggun kerfisins á því ofbeldi sem íslenska ríkið ber ábyrgð á og skyldu til að bæta upp. Því miður tók fyrrum lögmaður okkar fjölskyldunnar, Lúðvík Bergvinsson, virkan þátt í þessu ráðabruggi verjenda kerfisins og vísaði alltaf til þess, þegar ég kvartaði, að þetta væri nauðsynlegur liður í stærri strategíu til þess að fá málið endurupptekið og dómnum hnekkt.“ Segir hann að aðför kerfisins að Guðjóni Skarphéðinssyni ætti því ekki að koma sérstaklega á óvart. „En Katrín Jakobsdóttir hefði getað afstýrt þessari nýjustu árás. Hún hefði getað sett á laggirnar rannsóknarnefnd til að gera upp það sem enn er óuppgert í málinu - til þess m.a. að komast að því hver beri ábyrgð á hverju - og hún hefði getað hafnað því að ríkið tæki þátt í þolendaskömmun og þöggun.“ Tryggvi segir að Katrín hafi kosið að aðhafast ekki í þá átt heldur ljá herferð kerfisins rödd og andlegt til að almenningur héldi mánuðum saman að allt væri í ásættanlegu horfi. „Má Katrín skammast sín fyrir sinn þátt í þessari sögu. Hins vegar má ekki eigna henni sjálfri eða þessari ríkisstjórn það níð sem birtist í greinargerð setts ríkislögmanns. Í þessu stærra kerfislæga samhengi eru ráðherrarnir bara undirlægjur.“ Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, sagði í Víglínunni á Stöð 2 fyrr í dag að sú staða sem er komin upp í máli sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum sé eins og kjaftshögg fyrir aðila málsins. Hún tók undir orð Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, að það sé óásættanlegt að fólk þyrfti að leita ítrekað réttar síns í dómsölum yfir svo langan tíma.
Guðmundar- og Geirfinnsmálin Tengdar fréttir Viljaleysi ríkisstjórnarinnar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum Afi minn, eins og margir aðrir þolendur harðræðis af hálfu íslenskra yfirvalda, trúði því að á meðan lykilgerendur í ofbeldinu gegn honum væru enn á lífi myndi reynast útilokað að ná fram sannleika og réttlæti fyrir þær hörmungar sem hann þurfti að líða sem ungur maður. 6. maí 2019 15:52 Nýjustu vendingar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu furðulegar, sorglegar og með ólíkindum að mati þingmanna Þrír þingmenn segja nýjustu vendingar í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum ýmist vera sorglegar, furðulegar eða með ólíkindum. Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir settan ríkislögmann láta eins og ekkert hafi gerst í málinu frá árinu 1990. 22. september 2019 11:39 Opinberun tvöfeldninnar Katrín Jakobsdóttir þykist hafa gildi og marka stefnu ríkisins, en keppist í reynd við að þjóna kerfi sem brýtur á, lítillækkar og þaggar niður í þeim sem minnstar varnir hafa gegn ofríki hins opinbera. Eins og ég hef árangurslítið reynt að vekja athygli á síðan ég byrjaði að tjá mig um GG-mál fer því fjarri að allar hliðar þeirrar sögu hafi verið leiddar til lykta með endurupptökuferli síðustu ára. 22. september 2019 18:51 Segir greinargerð ríkislögmanns grimma Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir þá stöðu sem er komin upp í máli sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum vera eins og kjaftshögg fyrir aðila málsins. 22. september 2019 19:58 Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Fleiri fréttir Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Sjá meira
Viljaleysi ríkisstjórnarinnar í Guðmundar- og Geirfinnsmálum Afi minn, eins og margir aðrir þolendur harðræðis af hálfu íslenskra yfirvalda, trúði því að á meðan lykilgerendur í ofbeldinu gegn honum væru enn á lífi myndi reynast útilokað að ná fram sannleika og réttlæti fyrir þær hörmungar sem hann þurfti að líða sem ungur maður. 6. maí 2019 15:52
Nýjustu vendingar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu furðulegar, sorglegar og með ólíkindum að mati þingmanna Þrír þingmenn segja nýjustu vendingar í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum ýmist vera sorglegar, furðulegar eða með ólíkindum. Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir settan ríkislögmann láta eins og ekkert hafi gerst í málinu frá árinu 1990. 22. september 2019 11:39
Opinberun tvöfeldninnar Katrín Jakobsdóttir þykist hafa gildi og marka stefnu ríkisins, en keppist í reynd við að þjóna kerfi sem brýtur á, lítillækkar og þaggar niður í þeim sem minnstar varnir hafa gegn ofríki hins opinbera. Eins og ég hef árangurslítið reynt að vekja athygli á síðan ég byrjaði að tjá mig um GG-mál fer því fjarri að allar hliðar þeirrar sögu hafi verið leiddar til lykta með endurupptökuferli síðustu ára. 22. september 2019 18:51
Segir greinargerð ríkislögmanns grimma Hanna Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir þá stöðu sem er komin upp í máli sakborninganna í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum vera eins og kjaftshögg fyrir aðila málsins. 22. september 2019 19:58