Ferð Guðmundar Kort til New York reyndist tárvot Stefán Árni Pálsson skrifar 30. september 2019 10:30 Guðmundur og Sigrún við leiði Dino.
Guðmundur Kort fæddist í júlí árið 1950 og ólst upp í Hafnarfirði. Hann var kominn á þrítugsaldur þegar hann heyrði óljósar sögur af því að mögulega væri hann rangfeðraður. Hann fékk það síðan staðfest og hefur í rúm fjörutíu ár reynt að komast að því hver raunverulegur faðir hans sé. Sigrún Ósk Kristjánsdóttir fór í síðustu viku af stað með þriðju þáttaröð af Leitinni að upprunanum og er fyrsta viðfangsefnið leitin að föður Guðmundar. Guðmundur býr í Hafnarfirði ásamt eiginkonu sinni en saman eiga þau fjórar uppkomnar dætur. Hann er húsasmiður og fyrrverandi slökkviliðsmaður til 25 ára. Í síðasta þætti kom í ljós að faðir Guðmundar, Dino Lorenzini, lést 22. nóvember 2012 þá 93 ára gamall. Guðmundur komst aftur á móti í samband við hálfbróður sinn og ætlaði sér að hitta skyldmenni sín í Bandaríkjunum. Aftur á móti hætti hálfbróðir hans allt í einu að svara öllum tölvupóstum og stóð Guðmundur eftir í lausu lofti með sín plön. Hann ákvað samt sem áður að ferðast til New York og reyna að hafa upp á fólk sem gæti tengst honum. Í þættinum í gær var komið að Bandaríkjaförinni. Þeir sem hafa ekki séð annan þáttinn í þriðju þáttaröðinni ættu ekki að lesa lengra. . . . . . Það er búið að vara þig við. . . . . Falleg stund þegar Guðmundur fékk að hitta systkini sín. Þegar Guðmundur var á leiðinni til New York hafði hann ekkert heyrt í systkinum sínum í tvo mánuði. Guðmundur vissi ekki hvað var að valda þögninni. Hvort það væri erfðamál eða eitthvað annað. Einn daginn þegar Sigrún Ósk var í vinnunni kom í ljós að útvarpskonan Kristín Ruth Jónsdóttir kannaðist nú eitthvað við málið. Þetta var í raun frændfólk hennar. Kristín hafði rætt við fjölskyldu Guðmundar vestanhafs um málið. Kristín þekkir fjölskyldu Guðmundar vel og lét hún vita af væntanlegri komu þeirra til Bandaríkjanna. Það gekk ekki eins og í sögu og þegar fjölskyldan lagði af stað til New York var ekki komið á hreint hvort Guðmundur væri í raun velkominn. Guðmundur byrjaði á því að finna fallegan blómvönd til að leggja á leiði föður síns. Þegar í kirkjugarðinn var komið kom í ljós að verkefnið var ærið þar sem mörg hundrað manns eru jarðaðir þar. Eftir mikla leit fann fjölskyldan loks leiði Dino og Ágústu Jónsdóttur, eiginkonu hans. Við það brotnaði Guðmundur Kort niður. Guðmundur brotnaði niður þegar hann fann leiði föður síns. Skyndilega fóru að hrannast inn skilaboð frá systkinum Guðmundar og vildu þau sannarlega hitta týnda bróður sinn. Fyrst fékk Guðmundur að hitta Ritu Lorenzini sem brunaði til hans á bílaplani og féllust þau í faðma. Hún tilkynnti hópnum að þau mættu koma í húsið þar sem Dino fæddist og ólst upp. Eins ótrúlegt og það hljómar búa Íslendingar í húsinu í dag sem þekktu Dino vel. Guðmundur fékk að vita að Dino hafi aldrei verið hermaður á Íslandi, heldur vann hann á Keflavíkurflugvelli. Guðmundur vill ekki svekkja sig á þeirra staðreynd að hann náði aldrei að hitta föður sinn. Falleg fjölskyldustund. „Ég hef alltaf hugsað þannig að dagurinn sem er að líða í dag er búinn og kemur aldrei aftur. Þannig hef ég alltaf verið. Við fáum ekki breytt því sem er búið að gerast,“ sagði Guðmundur í þættinum í gær. Hann fékk einnig að hitta John bróður sinn með aðstoð tækninnar í gegnum símann. „Ég er bæði þreyttur og glaður. Ég held ég sofni bara um leið og legg hausinn á koddann.“ Guðmundur fékk síðan að hitta systkinin sín fimm og mættu þau öll til að hitta þennan nýfundna elsta bróðir sinn. Hann hefur ákveðið að taka sjálfur upp eftirnafnið Lorenzini og verða Guðmundur Kort Lorenzini. Rúmu ári síðar koma John Lorenzini í heimsókn til Guðmundar. Hann hafði þá ekki heimsótt Ísland frá því að hann var 15 ára. Þeir bræður eiga afmæli með dags millibili þann 25. og 26. júlí. Á afmælisdegi John héldu þeir sameiginlega veislu heima hjá Guðmundi. Hér að neðan má sjá atriði úr þættinum þegar Guðmundur fann leiði föður síns.
Leitin að upprunanum Mest lesið Fólki þyki erfiðast að setja mæðrum og tengdamæðrum mörk Lífið Grey‘s Anatomy-stjarna greindist með MND Lífið Einhleypan: Ást þegar manni er tekið eins og maður er Makamál Huggulegustu leikarar landsins undir einu þaki Lífið Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið „Enduðum á að kyssast í skrifstofustólnum hans“ Lífið Ofurskvísur eins klæddar á ofurskvísuæfingu Lífið Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Lífið Lúxus heilsulind á heimsmælikvarða fyrir Íslendinga Lífið samstarf Bestu myndir Vals Kilmer og verstu floppin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Rúrik á batavegi eftir aðgerð Grey‘s Anatomy-stjarna greindist með MND Fólki þyki erfiðast að setja mæðrum og tengdamæðrum mörk Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Huggulegustu leikarar landsins undir einu þaki Ofurskvísur eins klæddar á ofurskvísuæfingu Mundi ekki hver stýrði Newcastle United um aldamótin Einstök geymslutiltekt á Birkimel: „Hlutirnir hjálpa mér að muna“ Eiginkona bassaleikara Weezer skotin af lögreglu Stórglæsilegir vinningar í Páskabingói Blökastsins „Enduðum á að kyssast í skrifstofustólnum hans“ Bíó Paradís valið eitt af 21 svölustu kvikmyndahúsum heims Margrét selur hönnunarperlu í Skerjafirði Söngnemendur á Hvolsvelli með Kabarett Íslandsmet? Eiga sex barnabörn í leikskólanum á Vopnafirði Hætti í fússi eftir linnulausar svívirðingar nettrölla Draumur breska þríeykisins rætist á Húsavík Pitsurnar til styrktar minningarsjóðnum rjúka út Eyddu undir hundrað þúsund krónum í matarinnkaup í desember Heillandi sumarhús úr smiðju Leifs Welding: Jensen rúm fylgir með kaupunum Katrín Halldóra fyllir í stóra skó Segir óheilbrigt að pör djammi mikið hvort í sínu lagi Innlit í rúmlega 270 milljóna króna þakíbúð á Orkureitnum Svona var fjögurra rétta matseðillinn Líkaminn þarf ekki að vera fullfrískur til að upplifa unað Guðni Th. orðinn afi Fólk geti gengið frá kaupsamningum sjálft Lifir eins og kóngur á 150-200 þúsund krónum á mánuði Þakkar aðal sykurpabbanum fyrir allt Gellurnar fjölmenntu á gugguvaktina Sjá meira
Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið
Stóri bróðir skammar Rourke: „Ef ég verð lengur en fjóra daga þá verðurðu ekki hinsegin lengur“ Lífið