Steinunn Sigurðardóttir, rithöfundur og skáld, ætlar í heimsókn til Hafnar næsta föstudag, 15. nóvember. Hún hefur í farteskinu jöklabálkinn Dimmumót sem hún gaf út nýlega, um leið og hún fagnaði fimmtíu ára rithöfundarafmæli. Í bókinni er jökullinn hennar, Vatnajökull, í forgrunni og hún fjallar þar um hann í fortíð, nútíð og framtíð.
Rannsóknarsetur Háskóla Íslands mun halda málþing um bókina Dimmumót þennan dag, milli klukkan 16 og 18. Það verður í Nýheimum og samkvæmt fréttatilkynningu eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Þar mun Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur fjalla um jöklaskáldskap Steinunnar undir yfirskriftinni: Forni ljóminn – bláljósahvelið. Eiginmaður hennar, Þorvarður Árnason, umhverfis- og náttúrufræðingur, talar um listina að mynda jökla og verður með myndasýningu og Steinunn sjálf mun flytja erindi sem hún nefnir Vatna-Jökull á dimmumótum - og lesa upp úr nýju bókinni.
Eftir erindin verður boðið upp á kaffi og Steinunn áritar bækur.
Náttúra Íslands hefur lengi verið veigamikill þáttur í ritmennsku Steinunnar og hún hefur látið náttúruvernd og loftslagsmál til sín taka á ýmsum vettvangi. Dimmumót, er bálkur um hörfandi Vatnajökul, veröld sem var og verður. Þess má geta að Steinunn á heiðurinn af nýyrðinu hamfarahlýnun, sem nú hefur fest sig í sessi.

