Þetta var stærsta tap KR-inga í sögunni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. desember 2019 16:30 Helgi Már Magnússon hefur spilað í tveimur stærstu tapleikjum KR og var spilandi þjálfari liðsins í öðru þeirra. Vísir/Daníel
43 stiga tap KR-inga á móti Stjörnunni í Domino´s deild karla í síðustu viku var stærsta tap KR í efstu deild karla frá upphafi. Þeir „bættu“ gamla metið um tvö stig. Ingi Þór Steinþórsson átti einu sinni metið yfir þann þjálfara sem hafði unnið KR með mestum mun í efstu deild en nú á hann metið yfir stærsta tap þjálfara KR í efstu deild. KR-ingar bættu rúmlega sjö ára gamalt met þegar þeir töpuðu með 43 stigum í Garðabæ en gamla metið var 41 stigs tap á heimavelli 25. október 2012. KR tapaði þá 63-104 á móti Snæfelli sem var þá undir stjórn Inga Þórs Steinþórssonar, núverandi þjálfara KR-liðsins. Þrír leikmenn KR-liðsins í Stjörnuleiknum á dögunum voru einnig með í leiknum á móti Snæfelli. Þeir hafa allir tekið þátt í tveimur stærstu tapleikjum KR í efstu deild karla í körfubolta. Þetta eru þeir Brynjar Þór Björnsson, Helgi Már Magnússon og Kristófer Acox. Ágúst Angantýsson hjálpaði Stjörnunni að vinna þennan stórsigur á KR en hann lék með KR-liðinu í skellinum á móti Snæfelli fyrir sjö árum. Þriðja stærsta tapið, sem átti metið í 25 ár, var 40 stiga tap KR-inga í Keflavík í ársbyrjun 1987. Guðjón Skúlason lék þá hundraðasta leik sinn fyrir Keflavík og var stigahæstur á vellinum með 24 stig.Stærstu töp KR í efstu deild karla í körfubolta43 stiga tap 2019 á móti Stjörnunni (67-110)41 stigs tap 2012 á móti Snæfelli (63-104)40 stiga tap 1987 á móti Keflavík (52-92)38 stiga tap 1962 á móti ÍR (42-80)37 stiga tap 1999 á móti Njarðvík (65-102)36 stiga tap 1958 á móti ÍKF (24-60)34stiga tap 1992 á móti Val (79-113)31stigs tap 1988 á móti Keflavík (50-81) 1998 á móti Njarðvík (74-105)30 stiga tap 1989 á móti Njarðvík (66-96)
Dominos-deild karla Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Freyr segir belgíska blaðið ljúga Fótbolti Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Körfubolti Fleiri fréttir Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Sjá meira