Yngvi stígur úr stjórn Sýnar og verður framkvæmdastjóri Stefán Ó. Jónsson skrifar 5. desember 2019 10:25 Yngvi Halldórsson átti 0,01% hlut í Sýn í árslok 2018. Sýn
Yngvi Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Sýnar hf. og hefur því sagt sig úr stjórn félagsins, þar sem hann hefur setið síðan árið 2014. Yngvi tekur til starfa í byrjun janúar. Óli Rúnar Jónsson sem verið hefur varamaður í stjórn Sýnar kemur inn sem aðalmaður við brotthvarf Yngva, en hann er vörumerkjastjóri hjá Ölgerðinni. Þorvarður Sveinsson, rekstrarstjóri, hefur látið af störfum hjá fyrirtækinu. Frá þessu greinir Sýn sjálft í tilkynningu til Kauphallarinnar í morgun. Þar er þess jafnframt getið að samhliða þessum mannabreytingum hafi skipuriti Sýnar verið breytt. Þannig munu verkefni, sem m.a. eru tengd „ferlaumbótum“ og hugbúnaðargerð, færast undir rekstrarsviðið sem fyrrnefndur Yngvi stýrir. Í tilkynningunni er ferill hans rakinn. Er hann sagður hafa starfað frá byrjun árs 2018 sem meðeigandi hjá Alfa Framtak sem rekur framtakssjóðinn Umbreytingu. Frá árinu 2009 starfaði hann hjá Össur hf., síðast sem framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs, verkefnastofu og ferlaumbótasviðs. Þar áður var Yngvi ráðgjafi og verkefnastjóri í innleiðingum viðskiptahugbúnaðar og sem sjóðsstjóri erlendra hlutabréfa hjá Landsbankanum. Haft er eftir Heiðari Guðjónssyni, forstjóra Sýnar, í tilkynningunni að hann þakki Þorvarði, fyrrverandi rekstrarstjóra, fyrir hans framlag til fyrirtækisins - um leið og hann býður Yngva velkominn til starfa. „Hann hefur setið í stjórn Sýnar og Vodafone síðan árið 2014. Með þessum breytingum er skerpt á rekstri en ekki síður á stafrænni framþróun innan fyrirtækisins sem mun nýtast viðskiptavinum í framtíðinni,“ segir Heiðar.Vísir er í eigu Sýnar hf.
Fjarskipti Fjölmiðlar Vistaskipti Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Sjá meira