Innlent

Tuttugu og sjö smit til viðbótar

Andri Eysteinsson skrifar
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða
Skimun fyrir kórónaveirunni hjá Heilsugæslunni Höfða Vísir/Vilhelm

Staðfest smit nýs afbrigðis kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum eru nú alls 1675 hér á landi. Staðfestum smitum fjölgaði um tuttugu og sjö frá því að síðustu tölur birtust á covid.is klukkan eitt í gær.

Þá eru fjörutíu nú á sjúkrahúsi og ellefu á gjörgæslu vegna COVID-19. Alls hefur 751 manns batnað af veikinni. Þá eru 3.678 manns í sóttkví og 918 í einangrun. 14.846 hafa lokið sóttkví. Sýni sem hafa verið tekin eru orðin 34.623 talsins. Sjö dauðsföll hafa verið staðfest vegna kórónuveirusmits.

Klukkan tvö verður haldinn upplýsingafundur almannavarna og landlæknis þar sem farið verður yfir stöðu mála í sambandi við faraldurinn og farið yfir aðgerðir til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar.

Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Alma D. Möller landlæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi. Gestir fundarins verða Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Sigríður Dóra Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×