Nútíma stefnumótamenning hér á landi er oft mjög rafræn og hafa samfélagsmiðlar og stefnumótaforrit spilað sífellt stærra hlutverk í samskiptum fólks. Samskiptin eru oft á tíðum mest í gegnum síma í byrjun sambands og nokkuð hefur borið á því að fólk nýti sér þessa ákveðnu fjarlægð til að slíta samböndum í gegnum skilaboð.
Ef marka má niðurstöður Makamála úr könnuninni, Hefur þú „dömpað“ einhverjum í gegnum skilaboð?, hefur rúmlega þriðjungur lesenda Vísis upplifað það að vera „dömpað“ rafrænt.
Einnig er hægt að sjá að samkvæmt þessu segjast 20% lesenda hafa gripið til þess ráðs að slíta sambandi í gegnum skilaboð.
Hægt er að sjá nákvæmari niðurstöður hér fyrir neðan:
Hefur þú „dömpað“ einhverjum í gegnum skilaboð?
Já - 30%
Nei - 50%
Nei, en ég hef dömpað í gegnum skilaboð - 13%
Hef bæði dömpað og verið dömpað í gegnum skilaboð - 7%
*Tekið skal fram að niðurstöður byggjast eingöngu á svörum lesenda Vísis og því ekki hægt að alhæfa um niðurstöður. Kannanir Makamála eru ætlaðar til skemmtunar og til að vekja umræðu og athygli á ýmsum málefnum.