Allt það helsta um fyrirkomulag Ferðagjafarinnar Kristín Ólafsdóttir skrifar 26. maí 2020 10:53 Hægt verður að hlaða niður smáforriti til að nýta ferðagjöfina. Vísir/Vilhelm
Hægt verður að skipta ferðagjöf stjórnvalda niður og nýta hana innan fjölbreyttrar flóru ferðaþjónustufyrirtækja með sérstöku smáforriti sem hannað var til verksins. Kaupa má áfengi á skemmtistað fyrir inneignina, að því gefnu að staðurinn uppfylli skilyrði stjórnvalda til nýtingar gjafarinnar. Gildistími inneignarinnar rennur út í lok árs og þá verður fyrirtækjum ekki heimilt að taka við meira en 100 milljónum í formi ferðagjafa. Þetta kom fram á kynningarfundi ráðherra, ferðaþjónustunnar og Stafræns Íslands á útfærslu Ferðagjafarinnar, fimm þúsund króna inneign sem útgefin verður af stjórnvöldum til einstaklinga 18 ára eða eldri, þ.e. fædda 2002 og fyrr, með íslenska kennitölu. Einblínt er á að gjöfin verði nýtt í samgöngur, gistingu, veitingar og afþreyingu um allt land. Veitingastaðir, söfn og bílaleigur Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála- og nýsköpunarráðherra, lagði frumvarpið um ferðagjöfina fram á Alþingi í síðustu viku og það gekk til nefndar í gær. Í frumvarpinu um gjöfina, sem og á kynningarfundinum í morgun, er m.a. kynnt hvaða skilyrði fyrirtæki þurfa að uppfylla til að geta tekið við gjöfinni. Þannig verður hægt að nota gjöfina hjá fyrirtækjum sem uppfylla eitt af eftirfarandi skilyrðum og hafa starfsstöð á Íslandi: Fyrirtæki með gilt leyfi Ferðamálastofu Fyrirtæki með gilt rekstrarleyfi skv. 7. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald Fyrirtæki með gilt starfsleyfi frá viðeigandi heilbrigðisnefnd sem hefur verið gefið út vegna veitingastaða í flokki I, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald Ökutækjaleigum með gilt starfsleyfi frá Samgöngustofu skv. 1. mgr. 3. gr. laga um leigu skráningarskyldra ökutækja Söfnum og fyrirtækjum sem bjóða sýningu gegn endurgjaldi þar sem áhersla er á íslenska menningu, sögu eða náttúru. Þá var jafnframt kynnt á fundinum að hægt yrði að nota gjöfina hjá atvinnurekstri á borð við baðstofur, gufubaðstofur, götuleikhús, tívolí, útihátíðir og tjald- og hjólhýsasvæði. Hægt verður að nýta ferðagjöfina á veitingastöðum landsins.Vísir/vilhelm Fá ekki meira en 25 milljónir Frumvarpið miðar jafnframt við að hvert fyrirtæki geti að hámarki tekið við 100 milljónum króna í greiðslu í formi ferðagjafa. Þá getur fyrirtæki sem „metið var í rekstrarerfiðleikum 31. desember 2019“, líkt og segir í frumvarpinu, ekki tekið við meira en 25 milljóna ferðagjafagreiðslu. Einstaklingum er jafnframt heimilt að gefa eigin ferðagjöf, þ.e. framselja hana til einhvers annars. Einn einstaklingur getur þó ekki greitt með fleiri en 15 ferðagjöfum. Gildistími ferðagjafa er frá útgáfudegi til og með 31. desember 2020. Ekki myndast inneignarréttur eftir að gildistími rennur út, að því er fram kom á fundinum í morgun. Strikamerki í smáforriti En hvernig geta einstaklingar og fyrirtæki nálgast gjöfina og greitt með henni? Svör við þessu útlistaði Andri Heiðar Kristinsson framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, sem fer meðal annarra með umsjón verkefnisins, á kynningarfundinum nú í morgun. Einstaklingar geta nálgast ferðagjöfina í gegnum vefsíðuna Ísland.is í byrjun júní en nákvæm dagsetning var þó ekki nefnd á fundinum. Þá er gert ráð fyrir þremur leiðum til að taka við gjöfinni: Skanna strikamerki með sérstöku smáforriti, sem íslenska frumkvöðlafyrirtækið YAY! Þróar. Notandi sýnir strikamerki í gegnum appið og viðkomandi ferðaþjónustuaðili getur skannað það inn, annað hvort með kassakerfi sínu eða með sérstöku skönnunarsmáforriti sem hægt verður að hlaða niður í síma. Slá inn númer gjafabréfs í vafra. Beintenging við bókunarkerfi viðeigandi ferðaþjónustufyrirtækis. Mörg kerfi eru þegar tengd en það verður sett í hendur fyrirtækjanna sjálfra hvort þau vilji nýta sér þetta – og það ætti ekki að vera flókið, að sögn Andra. Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.Vísir/vilhelm Aukagjöf frá fyrirtækjum verði möguleiki Hægt verður að skipta gjöfinni niður eins oft og hver og einn vill. Ferðaþjónustufyrirtækin slá þá inn þá upphæð sem nýtt er af gjöfinni hverju sinni. Þá verður öðrum fyrirtækjum einnig gert kleift að gefa starfsfólki eigin ferðagjöf til viðbótar við inneign stjórnvalda í gegnum sama kerfi. Fyrirtæki eru hvött til að hafa samband við skipuleggjendur til að koma því í kring. Þá kom fram á fundinum að ferðagjöfinni væri ekki ætlað að styðja við opinbera aðila eins og sundlaugar. Markmiðið væri að styðja við einkarekna aðila. Einnig var sérstaklega spurt hvort hægt væri að nota gjöfina til að kaupa áfengi á skemmtistað og það er leyfilegt, að því gefnu að viðkomandi staður uppfylli áðurnefnd skilyrði fyrirtækja. Ferðaþjónustufyrirtæki sem uppfylla skilyrðin og vilja geta tekið við gjöfinni skulu skrá sig á Ísland.is. Skráningin opnar á næstu dögum. Þá verður vefnum Ferðalag.is hleypt fljótlega af stokkunum, þar sem unnt verður að finna upplýsingar um þá staði sem taka við gjöfinni. Þá kom fram í máli Andra að uppgjör ætti að vera einfalt þegar búið er að nota ferðagjöfina. Fyrirtækin sendi mánaðarlegan rafrænan reikning fyrir heildarnotkun og fá greitt mánaðarlega. Greiðsla á að berast fljótt, að sögn Andra. Upptöku af fundinum í morgun má nálgast í heild hér að neðan.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Tengdar fréttir Bein útsending: Svona verður Ferðagjöfin til Íslendinga útfærð Kynningarfundur þar sem farið verður yfir útfærslu á Ferðagjöf, stafrænu gjafabréfi stjórnvalda, verður haldinn nú klukkan níu. 26. maí 2020 08:30 Hægt verði að greiða með allt að 15 gjafabréfum Gjafabréfið sem hvetja á Íslendinga til að ferðast innanlands í sumar er farið að taka á sig mynd. 22. maí 2020 15:35 Ferðagjöfina til Íslendinga verður hægt að nálgast fyrstu vikuna í júní Hver Íslendingur fær um 5300 krónur í sinn hlut. 8. maí 2020 15:40 Mest lesið Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Innlent Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Innlent Sakfelling Steinu staðfest Innlent Tíu manns í árekstri á Suðurlandi Innlent Lögreglustjóri tilkynntur fyrir ofbeldi og áreitni á þorrablóti Innlent Dóru Björt hafnað: „Nú eru kaflaskil“ Innlent Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningamerki Innlent „Svo sprakk rúðan og glerbrot út um allt í bílnum“ Innlent Mette boðar óvænt til kosninga Erlent Fleiri fréttir Strætó fór útaf á Holtavörðuheiði Skóli blásinn af og foreldrar eitt stórt spurningamerki Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Sex hundruð fastir á Akureyri eftir að áhafnir runnu út á tíma Þúsundir í slæmri stöðu, stjórnvöld verði að bregðast við Dóru Björt hafnað: „Nú eru kaflaskil“ Bæjarstjóri Mosfelssbæjar á lista Samfylkingar í Reykjavík Ástand sem ekki hefur sést áður Steina vill áfrýja: „Brotið gegn grundvallarréttindum umbjóðanda míns“ Vilja finna unglingaskóla nýjan stað Vaktin: Sautján vélar á röngum velli og flugferðum aflýst Tíu manns í árekstri á Suðurlandi Sakfelling Steinu staðfest Heilsugæslan tekur við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvar Lögðu hald á tugi kílóa lítt þekkts fíkniefnis Bein útsending: Veikindaréttindi og samspil milli vinnumarkaðar og heilbrigðisþjónustu Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Gísli Rafn lætur af störfum hjá Rauða krossinum Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Börnum með stöðu sakbornings fjölgar: „Sláandi tölur“ Viðreisn býður í fyrsta skipti fram á Akureyri Vonbrigði með verðbólgutölurnar og snjómokstur olli tjóni Háskólinn lagði stúdenta Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði Vilja borgarlest í stað borgarlínu Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Bein útsending: Þróun og horfur á vinnumarkaði Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Sjá meira
Bein útsending: Svona verður Ferðagjöfin til Íslendinga útfærð Kynningarfundur þar sem farið verður yfir útfærslu á Ferðagjöf, stafrænu gjafabréfi stjórnvalda, verður haldinn nú klukkan níu. 26. maí 2020 08:30
Hægt verði að greiða með allt að 15 gjafabréfum Gjafabréfið sem hvetja á Íslendinga til að ferðast innanlands í sumar er farið að taka á sig mynd. 22. maí 2020 15:35
Ferðagjöfina til Íslendinga verður hægt að nálgast fyrstu vikuna í júní Hver Íslendingur fær um 5300 krónur í sinn hlut. 8. maí 2020 15:40