Lewandowski jafnaði metið sitt en getur hann náð Müller? Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2020 10:30 Robert Lewandowski fagnar marki gegn Düsseldorf í gær. vísir/getty
Robert Lewandowski hefur aldrei skorað fleiri mörk en á þessari leiktíð eða alls 43 mörk í öllum keppnum, eftir að hann skoraði tvö marka Bayern München í 4-0 sigri á Fortuna Düsseldorf í gær. Bayern er efst í þýsku 1. deildinni, með tíu stiga forskot á Dortmund sem á leik til góða. Lewandowski skoraði samtals 43 mörk leiktíðina 2016-17 og hefur nú jafnað það met þegar Bayern á enn fimm deildarleiki eftir auk þess sem liðið er komið í undanúrslit þýska bikarsins og er 3-0 yfir í einvígi sínu við Chelsea í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu sem enn stendur til að klára. Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur skorað 29 af mörkum sínum í þýsku 1. deildinni, þar sem hann er með fimm marka forskot á Timo Werner. Lewandowski hefur mest skorað 30 mörk á einni leiktíð í deildinni og hefur nægan tíma til að gera betur. Hann varð markakóngur í fyrra með 22 mörk og leiktíðina þar áður með 29 mörk. Aðeins Gerd Müller hefur tekist að verða markakóngur þrjú ár í röð í Þýskalandi en nú blasir sá áfangi við Lewandowski. Pólverjinn á hins vegar enn talsvert í land með að jafna met Müllers yfir flest mörk á einni leiktíð í deildinni, en Müller skoraði 40 mörk veturinn 1971-72.
Þýski boltinn Tengdar fréttir Bayern skrefi nær titlinum eftir stórsigur á Düsseldorf Bayern Munich valtaði yfir Fortuna Düsseldorf í síðasta leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni og styrkti þar með stöðu sína á toppnum. 30. maí 2020 18:31 Lewandowski með 40 mörk fimmta tímabilið í röð og Bayern í góðum málum Bayern München náði aftur fjögurra stiga forskoti á toppi þýsku 1. deildarinnar í fótbolta þegar liðið vann nokkuð þægilegan 2-0 útisigur á Union Berlín í 26. umferð í dag. 17. maí 2020 17:58 Mest lesið Botna ekkert í Aþenu: „Margt við þetta lið Hörður minn sem ég átta mig ekki á“ Körfubolti Messi skrópaði í Hvíta húsið Fótbolti Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Fótbolti Mo Salah skýtur á Carragher Enski boltinn „Vonandi flyt ég heim til Grindavíkur áður en ég dey“ Körfubolti Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Fótbolti Halla forseti bauð þeim báðum á Bessastaði Sport Mætti í körfuboltakjól á hliðarlínuna Körfubolti Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Enski boltinn Græddi fjögur hundruð milljónir með því að grípa bolta í blálokin Sport Fleiri fréttir West Ham búið að bjóða Potter starfið Orðaður við íslenska landsliðið en þykir líklegur til að taka við Molde „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ Segir fótboltaguðina á móti Luton Milan og Juventus ásælast framherja United Í sárum eftir andlát ungs fótboltamanns Messi skrópaði í Hvíta húsið Nýja elsta kona heims elskar fótbolta Mo Salah skýtur á Carragher Nottingham Forest upp að hlið Arsenal AC Milan tók Ofurbikarinn fyrir framan nefið á nágrönnum sínum Hvíldu stórstjörnurnar sínar en brunuðu áfram í bikarnum Sir Alex og United goðsagnir í jarðarför: „Hún hefði kunnað að meta það“ Van Dijk sáttur við frammistöðu Trents á móti Man. United Keane tekur við sigursælasta félagi Ungverjalands Kenndi Zirkzee um klúðrið hjá Maguire Hlín endursamdi við Kristianstad Guardiola vill fá þrennu-Grealish aftur Littler fær að sýna bikarinn á Old Trafford Fékk að halda áfram að spila þrátt fyrir að hafa fengið rautt Gerrard að verða afi Segir Trent frekar eiga heima í Tranmere en Real Madríd Glódísar-æði hefur gripið um sig: „Ég kom til að horfa á Glódísi“ Vill fá útlending eða Rúnar Kristins sem næsta landsliðsþjálfara „Ef við gerum það ekki allar stundir munum við tapa leikjum“ „Verðum að halda áfram og við munum gera það“ „Ef við getum þetta á Anfield þá getum við þetta alls staðar“ Damir ekki lengi að opna markareikninginn í Asíu Orri áfram í bikarnum en af velli í hálfleik Þrjú víti og Ipswich áfram í fallsæti Sjá meira
Bayern skrefi nær titlinum eftir stórsigur á Düsseldorf Bayern Munich valtaði yfir Fortuna Düsseldorf í síðasta leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni og styrkti þar með stöðu sína á toppnum. 30. maí 2020 18:31
Lewandowski með 40 mörk fimmta tímabilið í röð og Bayern í góðum málum Bayern München náði aftur fjögurra stiga forskoti á toppi þýsku 1. deildarinnar í fótbolta þegar liðið vann nokkuð þægilegan 2-0 útisigur á Union Berlín í 26. umferð í dag. 17. maí 2020 17:58