Alfreð og Samúel í tapliðum í lokaumferðinni Arnar Geir Halldórsson skrifar 27. júní 2020 15:34 Alfreð bar fyrirliðaband Augsburg í lokaleik tímabilsins. vísir/Getty
Lokaumferð þýsku úrvalsdeildarinnar fór fram í dag. Lítil spenna var við toppinn þar sem Bayern Munchen var búið að tryggja sér meistaratitilinn en í botnbaráttunni var mikið undir. Werder Bremen lyfti sér upp úr næstneðsta sæti deildarinnar með 6-1 sigri á Köln á sama tíma og lærisveinar Uwe Rösler í Fortuna Dusseldorf steinlágu fyrir Union Berlin 3-0. Það þýðir að Dusseldorf er fallið úr deildinni en Werder Bremen á möguleika á að bjarga sæti sínu með því að sigra umspil við þriðja efsta lið B-deildarinnar. Hoffenheim tryggði sér sæti í Evrópudeildinni með 0-4 sigri á Borussia Dortmund og Borussia Mönchengladbach vann sterkan 2-1 sigur á Herthu Berlin sem færir Gladbach sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta ári. Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg og lék fyrsta klukkutímann í 1-2 tapi gegn RB Leipzig þar sem Timo Werner gerði bæði mörk gestanna í sínum síðasta leik fyrir félagið en hann gengur í raðir Chelsea í sumar. Samúel Kári Friðjónsson spilaði síðasta hálftímann fyrir Paderborn sem tapaði 3-2 fyrir Eintracht Frankfurt en Samúel og félagar voru fyrir löngu fallnir úr deildinni enda langneðstir.
Þýski boltinn Mest lesið Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Enski boltinn Littler yngsti heimsmeistari sögunnar Sport Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Enski boltinn „Eiginlega bara þið sem hafið pumpað þetta upp“ Handbolti Leik lokið: KR - Tindastóll 95-116 | Jólamaturinn fór betur í gestina Körfubolti Kahn gæti eignast fallið stórveldi Fótbolti Friðrik um viðskilnaðinn við Keflavík: „Ákvað að standa með sjálfum mér“ Körfubolti Brann einnig rætt við Frey Fótbolti Munar meira en fimmtíu milljónum á tapi og sigri í kvöld Sport Salah henti Suarez úr toppsætinu Enski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Guðmundsson til Noregs Líklegast að heimaleikur Víkinga fari fram í Kaupmannahöfn Ótrúlegur sigur lyfti Real á toppinn Brazell ráðinn til Vals Salah staðfestir að þetta sé hans síðasta tímabil með Liverpool Nýttu klásúlu í samningi Maguire Brann einnig rætt við Frey Salah henti Suarez úr toppsætinu Rashford ekki með til Liverpool og sagður lasinn Kahn gæti eignast fallið stórveldi Bjargaði æskufélaginu sínu Slot segir Man. Utd mun betra en taflan sýni „Það er betra að sakna á þennan hátt“ Segir Rashford hafa hafnað þremur tilboðum frá Sádi-Arabíu Börn Dagnýjar eftir á Íslandi: Blákaldur raunveruleikinn á fyrsta degi Fékk stóra sekt fyrir að faðma konu Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Íslandsmeistarinn Telma á leið til Skotlands Ancelotti vildi ekki tjá sig um Trent Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði stigum Fjölmargir leikmenn orðaðir við Arsenal Sjá meira