Ekkert vetrarfrí og engir endurteknir leikir á næsta tímabili Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. ágúst 2020 22:15 Liverpool á titil að verja í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. getty/Alex Pantling
Ekkert vetrarfrí verður í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili og þá verða ekki endurteknir leikir í ensku bikarkeppninni. Kórónuveirufaraldurinn setti mótahald úr skorðum og tímabilinu 2019-20 á Englandi er til þess að gera nýlokið. Keppni í ensku úrvalsdeildinni tímabilið 2020-21 á að hefjast 12. september og ljúka 23. maí. Það verður fimm vikum styttra en venjulegt tímabil. Á síðasta tímabili var í fyrsta sinn vetrarfrí í ensku úrvalsdeildinni eins og er í flestum öðrum deildum. Á næsta tímabili verður hins vegar ekkert vetrarfrí svo hægt verði að koma öllum leikjum fyrir. Til að minnka álag á leikmenn á þessu stutta tímabili verða engir endurteknir leikir í ensku bikarkeppninni. Þá verður einn leikur í undanúrslitum deildabikarsins en ekki tveir, heima og að heiman, eins og venjan er. Úrslitaleikur enska deildabikarsins fer fram 28. febrúar 2021 og úrslitaleikur ensku bikarkeppninnar 15. maí. Vegna kórónuveirufaraldursins verður verðlaunaféð sem bikarmeistararnir fá helmingi minna en á síðasta tímabili. Sigurvegarinn í bikarkeppninni 2020-21 fær 1,8 milljónir punda en Arsenal fékk 3,6 milljónir punda fyrir að vinna bikarinn á síðasta tímabili.
Enski boltinn Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira