Eyfi og Telma úr leik í Allir geta dansað Sóley Guðmundsdóttir skrifar 17. janúar 2020 21:45 Eyfi og Telma luku keppni í kvöld vísir/M. Flóvent Eyjólfur Kristjánsson og Telma Rut Sigurðardóttir voru send heim eftir danseinvígi í Allir geta dansað nú í kvöld. Eyfi og Telma og Manuela og Jón Eyþór voru í tveimur neðstu sætunum eftir að símakosningu lauk. Það var nýjung í kvöld að tvö neðstu pörin dönsuðu aftur og dómararnir ákváðu hvaða par skyldi halda keppni áfram. Dómararnir voru á einu máli um það að Manuela og Jón skyldu halda áfram. Eyfi og Telma voru því send heim. Þau fengu lægstu einkunn kvöldsins frá dómurum og komu úrslitin því ekkert rosalega á óvart. Manuela og Jón og Eyfi og Telma voru neðstVísir/M. Flóvent Einkunnirnar sem dómarar gáfu Eyfa og Telmu endurspegluðust í umsögnum þeirra um dansinn. Þar var mýktin helst sem vantaði. Karen hafði þetta að segja um frammistöðuna: „Þið hefðuð þurft að búa til meiri mýkt og við verðum alltaf að fylgja partnernum okkar. Annars vel gert." Selma var ánægð með búningana og sagði: „Alltaf ævintýralegt að fylgjast með ykkur, alltaf metnaður í búninga og svona. Vantaði mýkt í mjaðmirnar og svona grunnspor rúmbunar. Margt fínt en grunninn þarf að bæta." Jóhanni fannst gaman að horfa á þau dansa og sagði: „Alltaf gaman að horfa á ykkur dansa. Hefði viljað sjá aðeins meiri „rúmbu". En alltaf gaman að horfa á ykkur." Hér í spilaranum má sjá framlag Eyfa og Telmu. Í kvöld rann allur ágóði símakosningarinnar til Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Landsbjörg vinnur óeigingjarnt starf allan ársins hring. Mikið álag hefur verið á þeim undanfarnar vikur og eiga þau hrós skilið fyrir starf sitt. Næsti þáttur fer fram þann 24. janúar og verður það næst síðasti þátturinn. Vísir var í Glimmerhöllinni í Gufunesi og fylgdist með gangi mála.
Allir geta dansað Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira