Breiðablik fékk tvö rauð spjöld og skell gegn ÍA í úrslitaleiknum Anton Ingi Leifsson skrifar 30. janúar 2020 19:50 Guðjón Pétur fékk að líta rauða spjaldið í kvöld. vísir/vilhelm
ÍA stóð uppi sem sigurvegari í Fótbolti.net mótinu eftir 5-2 sigur á Breiðablik í úrslitaleiknum á Kópavogsvelli í kvöld. Mikill hiti var í leiknum en það voru Skagamenn sem komust yfir eftir stundarfjórðung er Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði með frábærri afgreiðslu. Marteinn Theodórsson tvöfaldaði forystu Skagamanna á 32. mínútu eftir hörmuleg mistök Antons Ara í marki Blika og Tryggvi skoraði þriðja mark Skagamanna á 39. mínútu. Staðan var 3-0 í hálfleik en Tryggvi Hrafn fullkomnaði þrennuna á sjöttu mínútu síðari hálfleiks eftir darraðadans í teig Blika. Gísli Eyjólfsson minnkaði muninn í 4-1 með skalla á 54. mínútu og sex mínútum síðar skoraði Benedikt Warén er hann kláraði góða fyrirgjöf í netið. Skagamenn fengu svo vítaspyrnu á 66. mínútu er Oliver Sigurjónsson braut á Herði Inga Gunnarssyni. Steinar Þorsteinsson skoraði af miklu öryggi. Allt sauð svo upp úr á 73. mínútu er Aron Kristófer Lárusson fór groddaralega í Brynjólf Darra. Guðjón Pétur Lýðsson hljóp á eftir Aroni og virtist slengja höndinni í andlitið á honum. Guðjón Pétur var rekinn í bað og hann var ekki eini Blikinn sem var sendur í bað því varamaðurinn Brynjólfur Darri Willumsson fékk rautt á 76. mínútu. Það virtist vera fyrir kjaftbrúk. Fleiri urðu mörkin, og rauðu sjöldin ekki, og lokatölur 5-2 sigur Skagamanna sem standa uppi sem sigurvegarar í Fótbolti.net mótinu þetta árið.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira