Hafa bara unnið FH einu sinni í tíu leikjum síðan þeir fóru með Íslandsbikarinn úr Krikanum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. ágúst 2020 14:00 Hilmar Árni Halldórsson fagnar sigurmarki sínu á móti FH sumarið 2018. Þetta er eini deildarsigur Stjörnunnar á FH síðan í október 2014. Vísir/Daníel Þór FH og Stjarnan mætast í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld en þetta er einn af leikjunum sem þurfti að fresta þegar Stjörnuliðið var sent í sóttkví. Leikurinn hefst klukkan 18.00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport en engir áhorfendur verða leyfðir á leiknum. Eftir þennan leik munu Stjörnumenn „bara“ eiga tvo leiki inni á topplið Vals en Stjarnan getur enn komist í efsta sæti deildarinnar með því að vinna alla leikina sem liðið á inni á toppliðið. Stjarnan hefur einu sinni orðið Íslandsmeistari karla í knattspyrnu og sá titil kom í hús í Kaplakrika 4. október 2014. FH nægði þar jafntefli en Ólafur Karl Finsen tryggði Stjörnunni sigur og Íslandsmeistaratitilinn með marki úr vítaspyrnu í uppbótatíma leiksins. Síðan eru liðin næstum því sex ár og lið FH og Stjarnan hafa alls mæst tíu sinnum í deildinni á þessum sex árum. Það vekur því athygli að Stjörnumenn hafa bara unnið FH einu sinni í tíu leikjum síðan þeir fóru með Íslandsbikarinn úr Krikanum. FH hefur unnið fimm af síðustu tíu deildarleikjum félaganna og fimm leikir hafa endaði með jafntefli. Markatalan er 21-11, FH-ingum í vil. Eini sigur Stjörnunnar á FH kom á Kaplakrikavelli 2. júlí 2018. Stjarnan vann þá 3-2 sigur þökk sé tveimur mörkum frá Hilmari Árna Halldórssyni og einu frá Brynjar Gauti Guðjónsson. FH komst samt tvisvar yfir í leiknum en sigurmark Hilmars Árna kom með skoti beint úr aukaspyrnu á 88. mínútu. Stjörnumenn hafa engu að síðustu skorað fimm mörk og náði í fjögur stig í tveimur síðustu deildarleikjum sínum í Kaplakrika. Hilmar Árni Halldórsson er með fjögur af þessum fimm mörkum og það fimmta kom eftir stoðsendingu frá honum. Síðustu tíu deildarleikir FH og Stjörnunnar: 2019 Í Garðabæ í ágúst: FH vann 3-1 Í Kaplakrika í júní: 2-2 jafntefli 2018 Í Garðabæ í september: FH vann 1-0 Í Kaplakrika í júlí: Stjarnan vann 3-2 2017 Í Garðabæ í ágúst: 1-1 jafntefli Í Kaplakrika í júní: FH vann 3-0 2016 Í Kaplakrika í ágúst: FH vann 3-2 Í Garðabæ í maí: 1-1 jafntefli 2015 Í Kaplakrika í ágúst: FH vann 4-0 Í Garðabæ í maí: 1-1 jafntefli Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira
FH og Stjarnan mætast í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld en þetta er einn af leikjunum sem þurfti að fresta þegar Stjörnuliðið var sent í sóttkví. Leikurinn hefst klukkan 18.00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport en engir áhorfendur verða leyfðir á leiknum. Eftir þennan leik munu Stjörnumenn „bara“ eiga tvo leiki inni á topplið Vals en Stjarnan getur enn komist í efsta sæti deildarinnar með því að vinna alla leikina sem liðið á inni á toppliðið. Stjarnan hefur einu sinni orðið Íslandsmeistari karla í knattspyrnu og sá titil kom í hús í Kaplakrika 4. október 2014. FH nægði þar jafntefli en Ólafur Karl Finsen tryggði Stjörnunni sigur og Íslandsmeistaratitilinn með marki úr vítaspyrnu í uppbótatíma leiksins. Síðan eru liðin næstum því sex ár og lið FH og Stjarnan hafa alls mæst tíu sinnum í deildinni á þessum sex árum. Það vekur því athygli að Stjörnumenn hafa bara unnið FH einu sinni í tíu leikjum síðan þeir fóru með Íslandsbikarinn úr Krikanum. FH hefur unnið fimm af síðustu tíu deildarleikjum félaganna og fimm leikir hafa endaði með jafntefli. Markatalan er 21-11, FH-ingum í vil. Eini sigur Stjörnunnar á FH kom á Kaplakrikavelli 2. júlí 2018. Stjarnan vann þá 3-2 sigur þökk sé tveimur mörkum frá Hilmari Árna Halldórssyni og einu frá Brynjar Gauti Guðjónsson. FH komst samt tvisvar yfir í leiknum en sigurmark Hilmars Árna kom með skoti beint úr aukaspyrnu á 88. mínútu. Stjörnumenn hafa engu að síðustu skorað fimm mörk og náði í fjögur stig í tveimur síðustu deildarleikjum sínum í Kaplakrika. Hilmar Árni Halldórsson er með fjögur af þessum fimm mörkum og það fimmta kom eftir stoðsendingu frá honum. Síðustu tíu deildarleikir FH og Stjörnunnar: 2019 Í Garðabæ í ágúst: FH vann 3-1 Í Kaplakrika í júní: 2-2 jafntefli 2018 Í Garðabæ í september: FH vann 1-0 Í Kaplakrika í júlí: Stjarnan vann 3-2 2017 Í Garðabæ í ágúst: 1-1 jafntefli Í Kaplakrika í júní: FH vann 3-0 2016 Í Kaplakrika í ágúst: FH vann 3-2 Í Garðabæ í maí: 1-1 jafntefli 2015 Í Kaplakrika í ágúst: FH vann 4-0 Í Garðabæ í maí: 1-1 jafntefli
Síðustu tíu deildarleikir FH og Stjörnunnar: 2019 Í Garðabæ í ágúst: FH vann 3-1 Í Kaplakrika í júní: 2-2 jafntefli 2018 Í Garðabæ í september: FH vann 1-0 Í Kaplakrika í júlí: Stjarnan vann 3-2 2017 Í Garðabæ í ágúst: 1-1 jafntefli Í Kaplakrika í júní: FH vann 3-0 2016 Í Kaplakrika í ágúst: FH vann 3-2 Í Garðabæ í maí: 1-1 jafntefli 2015 Í Kaplakrika í ágúst: FH vann 4-0 Í Garðabæ í maí: 1-1 jafntefli
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Handbolti Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Sjá meira