Léttklæddar laxaflugur Karl Lúðvíksson skrifar 17. febrúar 2020 09:05 Létt kædd Blue Charm
Nú sitja margir veiðimenn sveittir við að hnýta flugur fyrir komandi tímabil og við ætlum að hjálpa aðeins til með því að koma með góðar hugmyndir sem oft reynast vel. Það er fátt eins gaman og að hnýta eigin flugur og svo ekki sé talað um ef fyrsti laxinn eða stærsti laxinn taki það agn sem veiðimaðurinn hnýtti sjálfur. Það er auðvitað um gríðarlegan fjölda veiðiflugna að ræða sem hægt er að nota í íslenskum ám og vötnum og sumar eru einfaldlega veiðnari en aðrar og sumar hnýtingaraðferðir að sama skapi oft veiðnari en aðrar. Eitt af því sem má kannski flokka sem byrjendamistök er að klæða flugurnar of mikið. Sumar flugur eru hnýttar í afbrigðum sem eru klæddar léttklæddar eða á ensku "lightly dressed" og þær þykja oft góðar þegar það þarf að koma flugunni aðeins dýpra í vatninu enda sekkur léttklædd fluga oft betur en fullklædd. Þetta er í raun ekkert flókið, þegar þú sest niður og hnýtir þá flugu sem þú notar mikið prófaðu að nota minna efni í stél, væng og skegg. Að sama skapi passaðu að búkurinn verði ekki of feitur. Á meðfylgjandi mynd má sjá afar fallega hnýtta, léttklædda Blue Charm sem er ein af uppáhaldsflugum undirritaðs og í þessari hnýtingu hefur hún reynst afar vel í litlu vatni og sólríkum dögum. Ég hef hnýtt tvær útgáfur af Blue Charm léttklæddri. Önnur í þeirri útgáfu sem sést á myndinni og hin er sin að því undanskildu að ég nota medium flat tinsel á búinn sem gerir það að verkum að það glampar aðeins meira á hana á björtum degi. Við hvertjum ykkur til að prófa tvær eða þrjár uppáhaldsflugur og hafa þær léttklæddar, prófa svo í sumar hvort þær reynist ykkur betur en að hafa þær fullklæddar.
Stangveiði Mest lesið Stórlaxar síðustu daga Veiði Sjáðu laxana í teljaranum í Búðarfossi Veiði 42 laxar í opnun á Stóru Laxá svæði 4 Veiði Langá loksins að fá stóru göngurnar? Veiði Fyrsti laxinn úr Vatnsdalsá af silungasvæðinu Veiði Fyrsti laxinn á land í Ytri Rangá Veiði Varar við áætlunum um virkjanir í Þjórsá Veiði Gott skot í Kjósinni Veiði Sífellt fleiri konur við árbakkann Veiði Hálendisveiðin gengur vel Veiði