Fótbolti

Valur fór létt með ÍBV | Víkíngur Ó. halda áfram að leka mörkum

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurður Egill skoraði tvívegis gegn ÍBV í dag.
Sigurður Egill skoraði tvívegis gegn ÍBV í dag. Vísir/Bára

Alls eru þrír leikir búnir í Lengjubikar karla í dag. Valur vann ÍBV örugglega. Víkingur Ólafsvík átti aldrei roð í Fjölni og Grótta gerði 2-2 jafntefli við Grindavík eftir að hafa komist í 2-0. Þá klúðruðu Grindvíkingar vítaspyrnu undir lok leiks.

Í 4. riðli A-deildar voru tveir leikir á dagskrá. Þar unnu Valur og Fjölnir stórsigra.

Valur var 4-0 yfir í hálfleik gegn ÍBV á Hlíðarenda en fjórða markið var einkar kómískt. Bjarni Ólafur Eiríksson, fyrrum leikmaður Vals, gaf þá Sigurði Agli Lárussyni einfaldlega mark á silfurfati aðeins nokkrum sekúndum eftir að Valsmenn höfðu komist í 3-0. Var það annað mark Sigurðs Egils í leiknum en Kaj Leó í Bartalsstovu og Kristinn Freyr Sigurðsson skoruðu einnig fyrir Valsmenn í dag. Gestirnir frá Vestmannaeyjum minnkuðu muninn á 65. mínútu með marki Jose Enrique og þar við sat. 

Lokatölur 4-1 Valsmönnum í vil sem þýðir að þeir eru nú með sex stig eftir þrjá leiki, líkt og ÍBV.

Fjölnir fór létt með Víking frá Ólafsvík þegar liðin mættust í 4. riðli A-deildar Lengjubikarsins í dag. Jón Gísli Ström kom Fjölni tvisvar yfir í fyrri hálfleik og staðan í hálfleik var 2-1. Fjölnismenn voru hvergi nærri hættir og skoraði Ingibergur Kort Sigurðsson tvívegis í síðari hálfleik sem og Sigurpáll Melsteð Pálsson skoraði nokkuð óvænt. 

Lokatölur 5-1 Fjölni í vil sem eru komnir með sex stig í 2. sæti riðilsins en Víkingur er á botninum án stiga og hefur fengið á sig 13 mörk í þremur leikjum og aðeins skorað eitt.

Þá mættust Grótta og Grindavík í 3. riðli A-deildarinnar. Grótta komst í 2-0 þökk sé mörkum Péturs Theódórs Árnasonar og Kristófer Melsted. Aðeins 10 mínútum eftir síðara mark Seltirninga var staðan orðin jöfn, 2-2.

Aron Jóhannsson minnkaði muninn í 2-1 á 55. mínútu og tveimur mínútum síðar hafði Alexander Veigar Þórarinsson jafnað metin. Undir lok leiks fékk Aron svo gullið tækifæri til að tryggja Grindavík sigurinn en hann brenndi þá af vítaspyrnu, lokatölur þar af leiðandi 2-2.

Grótta er í 3. sæti með fimm stig í riðlinum en Grindavíker í næst neðsta sæti með eitt stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×