Þrjár nauðsynlegar púpur í boxið Karl Lúðvíksson skrifar 14. maí 2020 08:17 Królkurinn er gjöful fluga. Mynd: www.arvik.is
Hver kannast ekki við valkvíðann sem læðist að manni þegar staðið er við veiðistað og fluguboxið er opnað með því úrvali sem þar oftast er til staðar? Málið er að það er oft ekkert betra að vera með of mikið úrval, þetta snýst meira um að vera með rétta úrvalið. Ég myndi halda að í silungsveiði sé ég að veiða 50% af mínum fiskum á þrjár flugur og þessar þrjár á ég alltaf til í nokkrum stærðum, óþyngdar og svo bæði kúluhaus með tungsten eða brassi. Það skal strax tekið fram að þessar þrjár sem ég nefni eru ekki endilega bestar en þær hafa reynst mér og öðrum veiðimönnum afar vel og ef ég ætti að mæla með einhverjum þremur til að eiga í boxinu þá eru þessar mitt fyrsta val enda gjöfular með eindæmum í minni veiði. Byrjum á Króknum. Þetta er bara sú sem ég vel fyrst í silung, bæði í vatnaveiði og straumvatni og það er ekki að ástæðulausu. Ef Krókurinn er ekki að gefa skipti ég í Pheasant Tail en hún hefur reynst mér afar vel í allri silungsveiði allt árið um kring. Þriðja flugan er svo Caddis en hana hef ég veitt ansi vel á í Þingvallavatni, Elliðavatni, Hraunsfirði, Köldukvísl, Fljótaá, Hörgsá, Soginu og víðar. Hana þarf að vísu alltaf að veiða við botninn en stærstu bleikjurnar sem ég hef fengið í gegnum tíðina eru á þessa og þær hafa allri veiðst á B'ildsfelli í Soginu. Stærsta átta pund. Gleymi þeirri bleikju seint. Aðrar flugur sem síðan fylla upp í annað pláss í boxinu eru til dæmis Taylor, Peter Ross, Peacock, Killer, Langskeggur, Mobuto, Héraeyra, Frisco og Black Zulu. Það er bara ekki hægt að eiga nóg af flugum því hluti af þessari ánægju sem maður upplifir í veiði er að sitja á stað, fiskurinn vakir, fluga er valin og fiskur tekur.
Stangveiði Mest lesið Skrínan - Hægt að skrá alla veiði rafrænt Veiði Veiðimenn kvarta undan illa merktum laxveiðiám Veiði Dularfullu flugur sumarsins 2011? Veiði Ágæt veiði í opnun Veiðivatna þrátt fyrir kulda og trekk Veiði Laxinn mættur í Langá og Grímsá Veiði Aukning í netaveiði 2010 Veiði 30 laxa holl í Stóru Laxá Veiði Bestu haustflugurnar í laxinn Veiði Stóra-Laxá í gang og laxar komnir á land Veiði Nýjar vikutölur úr laxveiðiánum Veiði