Börðu par með keðju og rændu snjallúri Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2020 06:18 Lögregluþjónar stöðvuðu í nótt bíl sem hafði verið stolið í gær. Þegar bíllinn var stöðvaður skiptu ökumaður og farþegi um sæti og eru þau grunuðu um akstur undir áhrifum fíkniefna, að aka ítrekað án réttinda og akstur án öryggisbelta. Vísir/Vilhelm
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í gærkvöldi tilkynning um rán og líkamsárás í Breiðholti. Tilkynningin var frá pari sem hafði nýverið auglýst Apple snjallúr til sölu. Þau höfðu rætt við konu sem sagðist vilja kaupa úrið en bað þau um að koma með það að heimili hennar í Breiðholti. Þar biðu þó tveir menn og kona eftir þeim, börðu þau með keðju og rændu úrinu, samkvæmt dagbók lögreglunnar. Einnig barst tilkynning um tvo menn sem spörkuðu í bíla við Grensásveg í gærkvöldi. Þeir höfðu keyrt af vettvangi þegar lögregluþjóna bar að garði en fundust skömmu síðar. Mennirnir voru í annarlegu ástandi og grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögregluþjónar stöðvuðu í nótt bíl sem hafði verið stolið í gær. Þegar bíllinn var stöðvaður skiptu ökumaður og farþegi um sæti og eru þau grunuðu um akstur undir áhrifum fíkniefna, að aka ítrekað án réttinda og akstur án öryggisbelta. Allir þrír sem í bílnum voru voru handteknir. Þá barst tilkynning um umferðarslys í gær þar sem bíl var ekið í veg fyrir annan og svo af vettvangi. Viðkomandi ökumaður skildi þó skráningarnúmer bíls síns eftir á vettvangi þar sem það datt af í slysinu og ætlar lögreglan að reyna að hafa upp á honum. Lögreglunni barst svo tilkynning um húsbrot og líkamsárás seint í nótt. Þar segir aðili að leigusali hans hafi komið inn í íbúðina og ráðist á hann.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Maðurinn fannst látinn Innlent Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Innlent Grunaðir um að skiptast á að nauðga konu Innlent Icelandair þurfi að kannast við reglur réttarríkisins Innlent Krefja blaðamann Samstöðvarinnar um fimmtán milljónir Innlent Inga skellihló að Sigurði Inga Innlent Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Innlent Faðirinn ekki lengur í einangrun Innlent Banaslys við Fossá Innlent Demókratar uggandi yfir niðurstöðum skoðanakannana Erlent Fleiri fréttir Móðir ákærð fyrir stórfellda líkamsárás Smíði Ölfusárbrúar í uppnámi vegna skilyrðis fyrir ríkisábyrgð „Við getum ekki treyst Hagkaup í Skeifunni fyrir unglingunum“ „Þegar ég hugsa til baka þá fæ ég bara kökk í hálsinn“ Banaslys við Fossá Erlend glæpagengi fá Íslendinga til að ræna reiðhjólaverslanir Miðflokkurinn marktækt stærri en Sjálfstæðisflokkurinn Tíðindi í glænýrri könnun, innbrotafaraldur og biðin sem sligar fjölskyldur Fjögur í varðhaldi vegna innbrota í Elko Tveir í bílnum sem ók út af Nokkur vitni að banaslysi við Brúará Stefnt að hertara eftirliti á landamærunum í nóvember Inga skellihló að Sigurði Inga Útsvarsaukningin aðeins hugsuð til tveggja ára Skerða orku til stórnotenda Alvarlegt umferðarslys við Fossá á Skaga Segir fjármálaráðherra ekki kunna að reikna Blöskrar framkoma sérsveitar og afskiptasemi nágranna Tveir hafa játað sök í stóra fíkniefnamálinu sem fer ekki fet Verður formaður stjórnar Matvælasjóðs Faðirinn ekki lengur í einangrun Þurfi að komast út úr kjarasamningum „með góðu eða illu“ Landris og kvikusöfnun heldur áfram Sigurður Ingi segir skort á sálfræðingum vandamál Baldur greiddi fjórðung kostnaðar við framboð sitt sjálfur Maðurinn fannst látinn Garðabæ óheimilt að skerða þjónustu við ellefu ára stúlku Bein útsending: Málþing um fóstur- og nýburaskimanir Svandís vill formannsstólinn og það hægir á íbúðauppbyggingu Fjarðarheiði lokuð og bílar fastir Sjá meira