Smit í Hæfileikamótun drengja hjá KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2020 08:27 Knattspyrnusamband Íslands þurfti að grípa til ráðstafana eftir að Covid-19 smitaður drengur tók þátt í Hæfileikamótun drengja hjá KSÍ. Getty/ Lorenzo Di Cola
Allir þeir sem tóku þátt í og komu að Hæfileikamótun drengja hjá Knattspyrnusambandi Íslands eru komnir í sóttkví eftir að einn þátttakandi greindist smitaður af kórónuveirunni. Knattspyrnusamband Íslands segir frá því á heimasíðu sinni í dag að einn þátttakandi í Hæfileikamótun drengja, sem fram fór í Egilshöll í Reykjavík 19. og 20. september, hafi greinst smitaður af Covid-19. Af þeim sökum þurfa aðrir þátttakendur (leikmenn og aðrir) að fara í sóttkví samkvæmt ákvörðun smitrakningateymisins. Smitrakningateymi Almannavarna hefur upplýst KSÍ um að einn þátttakandi í Hæfileikamótun drengja sem fram fór 19. og 20. september hafi greinst smitaður af Covid-19. https://t.co/nntAS7W8aT— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) September 24, 2020 Allir hlutaðeigandi hafa verið upplýstir um stöðuna og viðeigandi ráðstafanir hafa verið gerðar. 66 strákar fæddir árið 2006 voru boðaðir í Hæfileikamótun drengja hjá KSÍ að þessu sinni. Þeir komu úr 25 félögum víðs vegar að af landinu auk þess sem einn þeirra er hjá dönsku félagi. Ákveðið hefur verið að fresta Hæfileikamótun stúlkna sem fara átti fram um komandi helgi þar sem umsjónarmenn Hæfileikamótunar KSÍ eru á meðal þeirra sem eru í sóttkví. KSÍ gerði ráðstafanir vegna umræddrar Hæfileikamótunnar drengja. KSÍ ákvað þannig að takmarka aðgengi áhorfenda en hver drengur gat bara boðið einum aðstandanda að fylgjast með mótinu. KSÍ hvatti líka alla (leikmenn, þjálfara og aðstandendur) sem sóttu hæfileikamótið að gæta sérstaklega að öllum almennum sóttvörnum.
Fótbolti Faraldur kórónuveiru (COVID-19) KSÍ Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Sjá meira