Kona í Svíþjóð greindist með Covid-19 í annað sinn Atli Ísleifsson skrifar 16. október 2020 14:17 Dagens Nyheter greinir frá þessu og segir að konan hafi fyrst greinst með veiruna í maí og svo aftur í ágúst. Sahlgrenska
Læknar við Sahgrenska sjúkrahúsið hafa staðfest að 53 ára kona í Svíþjóð hafi greinst með Covid-19 í annað sinn. Dagens Nyheter greinir frá þessu og segir að konan hafi fyrst greinst með veiruna í maí og svo aftur í ágúst. Yfir sumarmánuðina hafi hún hins vegar ekki verið með nein einkenni eða mælst með veiruna í líkamanum. DN segir frá því að læknir konunnar hafi rannsakað sjúkrasögu konunnar og bent læknum við Sahlgrenska sjúkrahúsið og Háskólann í Gautaborg á málið. Hafa þeir síðan í september rannsakað erfðamengi veirunnar í konunni. „Veirustofninn frá í maí var í tíu atriðum frábrugðinn þeim sem rannsakaður var í ágúst. Það gerir það að verkum að við getum sagt að um tvær ólíkar sýkingar er að ræða og ekki sama sem hafi legið í dvala,“ segir læknirinn Johan Ringlander í samtali við DN. Læknarnir segjast þó ekki vera undrandi á því að hægt sé að staðfesta fyrsta tilfellið sem þetta í Svíþjóð, það er að sjúklingur hafi fengið Covid-19 í tvígang. Einungis hafi verið um tímaspursmál að ræða, þar sem sambærileg tilfelli hafi þegar komið upp í öðrum löndum. „Við þekkjum það með aðrar kórónuveirur að hætta á endurtekin veikindi er fyrir hendi,“ segir Ringlander.
Svíþjóð Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Fleiri fréttir Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Sjá meira